Icesave grínið heldur áfram, Ó Vigdís forseti.

Icesave er skítamál sem fólk ætti að hafna.  Ekki vegna þess að dómstólaleiðin sé greiðfær eða fær yfir höfuð heldur vegna þess að Bretar og Hollendingar fá sitt hvort sem er.  Nýjustu fréttir herma að þrotabú Icesavebankans dugi fyrir þessum kröfum og kannski gott betur.  Önnur ástæða fyrir því að segja Nei er sú að með JÁI fá bankamenn grænt ljós til halda leiknum áfram.  Jáið er líka uppgjöf gagnvart siðlausum bankamönnum eins og t.d. Ásmundi Stefánssyni og Björgólfi Thor.

Síðustu dagar hafa séð gríðarlegan áróður frá JÁ fólkinu.  Ekkert hefur verið sparað eftir að skoðanakannanir sýndu ranga niðurstöðu.  Skyndilega hætti óvissan sem hefur plagað þetta mál og breyttist í ofsagróða.  Gamli Icesave baukurinn er ekki lengur hálf tómur eða hálf fullur heldur blind fullur af Iceland Shop peningum sem bíða eftir að borga Icesave.

Önnur bomba frá JÁ liðinu mátti sjá á Eyjunni en nýi ritstjórinn sá ástæðu til að minna lesendur sína á Icesave 1 og hálft samninginn sem var samþykktur af þingi og forseta en ekki viðsemjendum okkar.  Allt í einu sagði þessi gamli Samfylkingarmaður að það væri hugsanlega lagalegur möguleiki að Bretarnir vildi bara taka þann díl.  Þrátt fyrir að hafa hafnað honum á sínum tíma.  Kannski er þá líka lagalegur möguleiki að þeir vilja borga með Icesave og ríkissjóður græði á öllu saman.  Hver veit.

Ekki veit Vigdís Finnbogadóttir það en sú mæta kona segir í yfirlýsingu að þjóðin verði að segja JÁ.  Þrætur og þras gangi ekki við siðsamar nágrannaþjóðir sem settu á okkur hryðjuverkalög.  En gamli forsetinn tekur þó sérstaklega fram að hún leggi það ekki í vana sinn að lýsa afstöðu sinni til umdeildra mála.  Nei, nei, það gengur ekki.  Henni datt t.d. ekki í hug að vara útlendinga við Icesave og Landsbankanum.  Nei, nei, íslenska útrásinn var ekki neitt til að tjá sig um við útlendinga eða innlenda sauði.  Spurning hvort hún vilji styrkja gott málefni og borga minn hlut.  Nógu sólbrúnn er ég og með útblásinn maga eins og svöngu börnin í Afríku sem hún heldur svo mikið upp á.

Fjórða grínið sem JÁ liðið býður upp á er að sjálfur aðalþjófurinn eða bílstjórinn eftir því hvernig á málið er litið vilji EKKI borga Icesave.  Já, þið heyrðuð þetta rétt, Sigurjón digri Árnason, ætlar alls ekki að segja JÁ heldur NEI.  Og alveg sérstaklega þess vegna ætti fólk ekki að segja JÁ.  Þessi afstaða er jafn vitlaus og neita að elta brennuvarg út úr brennandi húsi.  Brenna frekari inni með börn og bú en elta dólgin út.  Dettur þessu prinsipp fólki ekki í hug, sem vill þó ekki borga allt Icesave, að elta brennuvargin út og handsama hann.

Eru einu kostirnir í stöðunni að elta brennuvarginn út, leyfa honum að sleppa, gangast síðan við glæpnum sjálf og sitja í fangelsi fyrir glæp sem við ekki frömdum næstu hálfa öldina.  Eða brenna inni af því að við vildum ekki fara í fangelsið?

 

 

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: