Hveragerði Brennur

Í viðtali við Kryppuna sagði rafvirkjameistari frá svörtum rafmagnstöflum í Hveragerði.  Nýlegar rafmagnstöflur væru ónýtar sökum brennisteins eða mengunar frá Hellisheiðarvirkjun.  Mengunin væri greinilega talsverð sem Hveragerðisbúar önduðu að sér og hann ráðlegði fólki ekki kaupa sumarbústað þarna til að dvelja í.

Orkuveita Reykjavíkur lét gera rannsókn á áhrifum brennisteinsvetnis á mosa í næsta nágrenni Hellisheiðarvirkjunar.  Í fréttatilkynningu sem OR sendi frá sér 10.3.2009 segir:

Vísindaleg rannsókn leiðir í ljós að ekki er unnt að fullyrða með óyggjandi hætti að brennisteinsvetni sé að drepa mosa næst Hellisheiðarvirkjun.”

Hvernig getur OR fullyrt þetta ef vandamálið er öllum sjáanlegt og þeir telja sjálfir að brennisteinsvetni valdi skemmdum á gróðri sbr. setninguna:

“Vísbendingar eru þó um að það eigi þátt í mosaskemmdum í allt að  700 metra fjarlægð frá stöðvarhúsinu.”

Þeir fela sig á bak við þá staðreynd að rannsóknarhöfundar vita ekki hver þolmork mosa fyrir brennisteini eru og rannsökuðu það ekki sérstaklega.  Þessi niðurstaða er því ómerkilegt PR prump OR til að friða fólk og fjölmiðla.  Ekkert að marka því gögn eru ekki til segja þeir.  Bingó!

Samkvæmt Vísindavef HI er Brennisteinsvetni, litlaus, baneitruð og eldfim lofttegund.  Sem safnast fyrir í tönkum og leiðslum og sennilega sé það ástæða tveggja dauðsfalla við Hellisheiðarvirkjun.


Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments