Hver er húsbóndinn, drenghundur?

Það eru ekki bara lögreglu og flugvallaryfirvöld sem ganga berserksgang ef lýðurinn vogar sér að horfa vitlaust á þau eða er ekki nógu fljótur að hlýða. 

Bob Etheridge, þingmaður demokrata frá Norður Karólínu er ekki hrifinn af borgurum sem ávarpa hann og spyrja spurninga á förnum vegi.  Svo hann ákvað að rífa aðeins í hnakkadrambið á einum þeirra. 

Strákagreyin, sem eru þarna bara að vinna verkefni fyrir skólann sinn, eiga í vök að verjast, það er ekki nóg með að maðurinn vaði yfir þá með frekju, heldur notar hann handaflið og ekki mátti miklu muna að þetta viðtal endaði í heilsurækt að sjómannasið.

Bandaríska þingið greiðir nú atkvæði um þingmál í “trúnaði” og hunsar með hroka vilja fólksins með því að troða upp á það óvinsælum lögum, svo sem Obamacare, svo það er eðlilegt að þingmenn verði reiðir þegar skattborgarar spyrja þá spurninga og voga sér að véfengja vald þeirra.

Getur það verið að Etheridge sé svo veruleikafyrrtur að hann viti ekki að slík myndbönd enda á Youtube??

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: