Fjöldamorð og stríð eru yfirleitt slæm sérstaklega fyrir þá sem missa lífið og aleiguna. En það eru ekki allir sammála og tvö ríki skera sig úr, Bandaríkin og Ísrael. Þessi tvö lönd hafa staðið fyrir fleiri stríðum og fjöldamorðum ásamt Bretlandi en nokkur ríki í heimssögunni. Sjálfsagt má finna önnur dæmi úr mankynssögunni en þessi þrjú lönd eru enn til og enn að.
Nýlegar fréttir úr stórstraumsmiðlunum sögðu frá ferðum fjölda bandarískra herskipa í gegnum Súesskurðinn. Í síðustu viku birtust síðan fréttir af kaupum Ísraela á miklu magni af eldsneyti m.a. á orustuþotur. En í sömu frétt kom fram að það er síðasti söludagur á slíku eldsneyti.
Í gær birtist svo endursögð frétt í ísraelska fréttablaðinu Haaretz. En í henni er haldið fram að Ísrael ætli að ráðast fljótlega á vopnageymslur Hisbolla í Sýrlandi. Allt í nafni friðar og stöðugleika á svæðinu, að sjálfsögðu. Spurningin er bara hvort verði ráðist á Íran á eftir eða á sama tíma.

Comments
Powered by Facebook Comments