Hvetja til sveðjumorða

Leikstjórinn Róbert Rodriguez fer langt yfir strikið í sýnishorni að nýrri mynd sinni, Machete, þar sem hann lætur aðalhetju myndarinnar segja með drungalegri röddu: Þetta er Sveðjó, með sérstakt sínkó de majó skilaboð…. TIL ARIZÓNA.  Í kjölfarið fylgja blóðugar sveðjusenur og hatursáróður gegn hvítum sem Göbbels hefði getað verið stoltur af í fræðslumyndum sínum um Gyðinga.

Arizona hefur sem kunnugt er vakið misjöfn viðbrögð, með ósköp eðlilegri áherslu á að framfylgja innflytjendalöggjöf sinni, en síðustu ár hafa Mexíkóbúar geta streymt án mikillar mótstöðu inn í Bandaríkin og jafnvel fengið sérstaka meðferð hjá lögreglu og dómsyfirvöldum þegar kemur að því að framfylgja lögum um “minniháttar” glæpi, svo sem ölvunarakstur, líkamsárásir, brot á vinnulöggjöf, bótasvikum o.s.frv.  Á sama tíma er lagabókstafnum framfylgt af sérstakri hörku gegn venjulegum Bandaríkjamönnum.

Kvikmyndin hefði vel getað staðið sem létt pólitísk ádeila á innflytjendastefnu Bandaríkjanna, eða bara sem hefðbundin hefndaróður í Bronson stíl, en með þessu sýnishorni, þar sem sérstaklega er skírskotað til Arizona og gefin út á hátíðardegi Mexíkana, 5. maí, degi hinna dauðu, þá er leikstjórinn að leika hættulegann leik, þar sem hann reynir að kynda undir kynþáttahatri og endurvekja gömul áform Mexikóa um að ráðast inn í Bandaríkin og endurheimta landsvæði sem þeir telja að tilheyri sér, með því að útrýma hvítum eins og hundum í blóðugu sveðjustríði í ætt við þjóðarmorðin í Rúanda árið 1994.

Leikstjórinn hefði ef til vill frekar átt að gera mynd þar sem hann hvetur mexíkanskan almenning til að gera uppreisn gegn eigin óligörkum, en Mexíkó er ríkara land að náttúrulegum auðlindum og þjóðartekjum en Bandaríkin, en þar hefur elítunni tekist að halda almenningi í sárri fátækt meðan hún mjókar allan auð til sín.

Ólga í kynþáttamálum kemur hinsvegar forsetanum vel, en hann er að slá öll óvinsældamet um þessar mundir.  Spunameistarar forsetans hafa einmitt reynt að snúa allri gagnrýni upp í kynþáttahatur, meira að segja var það reynt að gera “sósíalisma” að útlægu orði, með því að segja það ver feluorð fyrir niggara.

New Film ‘Machete’ evokes race war

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments