Hún segist húsmóðir í vesturbænum, en hún kann að nefna gömlu gildi Sjálfstæðisflokksins og hún vill réttlæti, jafnvel þó það væri dýrara heldur en ranglæti.
Það er gamaldags. En nýja Ísland þarf einmitt á gamaldags viðhorfum. Að kunna að greina milli rétts og rangs. Hvað ef allir á Íslandi fá þúsundkall, eða hundraðþúsundkall, má þá fara í stríð við aðrar þjóðir? Gamaldags svar: Nei. Siðlaust svar: Já.
Hvað ef það kostar okkur einhver óþægindi að hafna Icesave, en það setur fordæmi fyrir milljónir vesturlandabúa sem hafa þurft að kyngja svipuðu óréttlæti, þar sem fjármálastofnanir flytja tap fjármálageirans á skattgreiðendur. Við getum hafnað því með friðsömum kosningum, vesturlandabúar fá engan friðsaman valkost, þeirra stjórnmálastétt bindur hendur þeirra óáreitt.
Eigum við að segja já við kúgun og velta skuldinni á skattgreiðendur næstu 35 ára, sem margir hverjir hafa enn engan kosningarétt, eða eigum við að segja NEI og taka afleiðingunum sjálf og strax?
Húsmóðirinn lætur Tryggva “kyngja ælunni” Herbertsson fá það óblandað.

Comments
Powered by Facebook Comments