Hundrað manns hugsa um peninga

Í kring um hundrað manns komu á fund Bill Still í Húsinu á miðvikudag síðastliðinn, til að kynnast hugmyndum hans um umbætur í peningakerfinu og horfa á nýja kvikmynd hans.

Bill er búinn að vera á ferðalagi um Evrópu að kynna myndina sína, en Þórarin Einarsson og félagar, sömu aðilar og fengu Webster Tarpley í heimsókn í byrjun október síðastliðnum, höfðu samband við Still og fengu til að koma við á Íslandi.  Í dag var svo mynd hans sýnd í Háskólabíói, ásamt Money as Debt.

Á fundinum hvatti Bill íslendinga til að nota tækifærið og lagfæra peningakerfi okkar.  Ríkisstjórnir þurfa ekki að fá peninga lánaða, þær geta einfaldlega prentað þá í því magni sem þarf og þurfa ekki að greiða neinum vexti af tilurð þeirra.  Úrtölumenn þessarar hugmyndar nefna þá gjarna að ríkisstjórnum sé ekki treystandi að fara með slíkt vald, en hann segir það alveg rétt.  Gallinn er bara sá að ríkisstjórnir skapa allt það fé sem þeim sýnist, þó þær þurfi að taka það að láni.  Kerfið verði því ekkert verra við það að stjórnvöld prenti peninga án skuldar, þvert á móti, þá þurfi skattgreiðendur þó allavega ekki að greiða vexti af þessu fé.

Annað dæmi sem hann nefndi, er einfaldlega að stofna ríkis og bæjarbanka.  Slíkir bankar geta velt skattfé og opinberri fjársýslu og nýtt sér þá peningagaldra sem felast í bankakerfi með bindiskyldu almenningi til hagsbóta, í stað þess að einkabankar sitji einir að þeirri peningasköpun sem verður í kerfinu.

Ef þið hafið misst af þessum sýningum nú í vikunni, þá endilega pantið myndina á vefsíðu hennar

http://www.secretofoz.com/

Þórarin kynnir Bill Still á fundi í Húsinu, miðvikudag

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments