Hugrænt misræmi hjá óinnvígðum

Mynd CC Hannibal Poenaru

Charlie Skelton bauð nokkrum félögum sínum með á Bilderberg, en þeir urðu fyrir nokkru sálfræðilegu áfalli við að sjá hversu hugmyndir þeirra um heiminn voru bjagaðar.

Það heitir “cognitive dissonance” á ensku og er hugtak úr sálfræði.  Á íslensku er það nefnt hugrænt misræmi, en sennilega skýrara að tala um óróa vegna hugræns misræmis.

Hugrænt misræmi er óþægileg spenna sem skapast af því að trúa tveimur ósamræmanlegum hugmyndum á sama tíma (og gera sér grein fyrir því).

Óróinn eykst við mikilvægi viðfangsefnisins, hve mikið ósamræmið er og ef erfiðlega gengur að réttlæta eða skýra ósamræmið með einhverjum rökum.

Óróleiki vegna hugræns misræmis er mjög öflugur hvati sem oft leiðir til þess að við skiptum um skoðun á annari eða einhverri af þeim hugmyndum sem skarast. 

Vinir Charlies eru kvikmyndagerðarmenn sem vinna að heimildarmynd.  Þeir sáu eðalvagnana á Bilderberg, þeir sáu lista yfir fundarmenn og kannski einvher af mikilmennunum og þeir sáu öryggisgæsluna.  Þeir skildu að þarna fór mikilvægt fólk saman á hótel til að tala saman í leynd.

En hvar voru fjölmiðlarnir?  Hvar var CNN trukkurinn og fjölmiðlateymin?  Hvar var BBC?

Þegar Bítrís Hollandsdrottning kemur í heimsókn til Þýskalands, þá eru fjölmiðlar út um allt.  Þegar Bill Gates hittir stofnanda Google og Feisbúks, þá verða tæknifjölmiðlarnir óðir, þeir myndu senda teymi til Fúkushíma til að ná myndum og fréttum frá slíkum fundi. 

En þegar 150 topp menn úr öllum heilstu valdageirum heimsins hittast til að véla með framtíð okkar…  ekkert.

Þessir heimildarmyndamenn verða að leysa þennan óróa með einhverjum hætti.  Til dæmis breyta hugmyndum sínum um heiminn og lýðræðið.  Eða lepja upp slepjuna frá spunakerlingum Bilderberg og jámönnum þeirra um allar jarðir, sem hjálpa fólki í Bilderberg sálarkreppu með því að bjóða þeim nýjar hugmyndir.  Þær eru kannski ekkert trúlegar, en þær geta sefað óróann og hjálpað fólki að láta eins og ekkert sé.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments