- Guðmundur Ásgeirsson
Goldman Sachs heitir bankinn sem ásamt öðrum hjálpaði grískum stjórnvöldum að falsa ríkisbókhaldið svo hægt væri að skuldsetja þjóðina langt umfram skilmála myntbandalags Evrópu. Meira um framferði Goldman Sachs, sem er einn af stærstu bönkum í heiminum, má lesa í leikhúsi fáránleikans, en þessi banki ásamt flestum stærstu bönkunum á Wall Street sæta nú rannsókn saksóknara í New York vegna gruns um stórfellda glæpastarfsemi og hafa kærur þegar verið gefnar út í nokkrum tilfellum. Meðal þeirra sem hafa verið nefndir til sögunnar auk Goldman Sachs eru: JPMorgan Chase, Citigroup, Morgan Stanley, Merill Lynch, Deutsche Bank, UBS, Credit Suisse og Credit Agricole.
Meira um Goldman Sachs má lesa í stórgóðri grein Matt Taibbi í Rolling Stone: The Great American Bubble Machine. Einnig má lesa um hátæknivædda markaðsmisnotkun þeirra í grein Ellen Brown fyrir Global Research: Computerized Front Running and Financial Fraud.
Eins og ég hef áður sagt og segði það enn: vandamálið er langt frá því að vera séríslenskt eins og borgunarsinnar hafa reynt að halda fram, og það er ekki hægt að ætlast til þess að íslenska þjóðin beri ábyrgð á tjóni erlendis vegna bankaglæpa ef aðrar þjóðir gera ekki slíkt hið sama. Afhverju fara bresk yfirvöld t.d. ekki fram á endurgreiðslu frá Bandaríkjastjórn vegna fjármuna sem tæmdir voru úr útibúi Lehman Brothers í London skömmu áður en sá banki féll með látum? Og nú skjóta Bretar skjólshúsi yfir menn sem eru eftirlýstir vegna meintra efnahagsbrota, hvenær kemur tillaga fyrir Öryggisráð SÞ um efnahagslegar þvinganir til að knýja á um framsal? Þrátt fyrir ágæta viðleitni er ennþá langt í að réttlætið nái fram að ganga, en vonandi hefst það á endanum.
CC mynd VladLazarenko - Goldman Sachs Tower, Jersey City, New Jersey
thetta er hluti af miklu staerri hugmynd en folk virkilega gerir ser grein fyrir! eins og bush eldri sagdi a attunda aratugnum.. It is a BIG idea this new world order… thetta er skipulagt, hannad til ad lata folk dyrka peninga, vera had peningum.. thad er endalaust haeg ad benda a vonda folkid og hvad thad segir en sannleikurinn er sa ad valdid aetti ad fara til folksins, .. Kerfid er dautt og tilgangslaust ad reyna ad blas i lif..
Svá góðr
3
Það er tímabært fyrir fólk að fara að átta sig á hverjir eru “Djöflarnir” í fjármálakefinu, kemur vel fram í þessum webcasts.
THE IDES OF MARCH: http://www.larouchepac.com/webcasts/20100313.html
The Greatest crisis in modern History:
http://www.larouchepac.com/webcasts/20100508.html
Þetta er besti skóli um fjármála ástandið í heiminum.
Hægt er að niðurhala og skoða í sjónvarpinu ef fólk vill
Svá góðr
2