
Mynd CC JD Hancock
Þegar rafhlaðan í fyrstu kynslóðar iPoddi Casey Neistat dugði ekki lengur nema í klukkustundar afspilun, þá fór hann að athuga með að fá nýja rafhlöðu í tækið.
Þá kom í ljós að Apple ætlaðist bara til að notendur keyptu nýjan iPod þegar rafhlaðan gefst upp. Hjá Neistat var tækið 18 mánaða þegar rafhlaðan var ónýt.
Neistat brást við með því að bæta upplýsingum um líftíma tækisins inn á auglýsingar, og setja svo allt dótið á Youtube, þar sem það fór eins og eldur í sinu um netheima.
Á endanum brást Apple við með því að uppfæra hönnun tækisins, það er að segja, hannaða úreldingu tækisins, svo það væri hannað til að endast í tvö ár. Hvort það var vegna Neistat bræðra, eða ESB löggjöf um 2ja ára ábyrgð, skal ég ekki segja um. En nú býður fyrirtækið einnig upp á að skipta um batterí fyrir $99.
Apple þykist vera “grænt” fyrirtæki, en svona hönnun er ekki beinlínis græn, að ætlast til þess að notendur hendi bara tækjunum og kaupi ný þegar batteríið er búið.

Comments
Powered by Facebook Comments