
Við þær væntingar sem verða til þegar Seðlabankinn hf í samvinnu við stjórnvöld í boði Wall Street ákveða að prenta fjall af dollurum á kostnað skattborgara, þá hækkar hlutabréfaverð.
Bernanke segir það muni hafa jákvæð áhrif á hagkerfið, fólk eyði meiri pening og það leiði til “dyggðahrings”, sem er auðvitað andstaðan við vítahring.
En við Íslendingar þekkjum þetta betur, í okkar litla hagkerfi gerast hlutirnir bara hraðar, þannig að við vitum í raun hvað meiri tekjur þýða í verðbólgu. Þær hafa enga merkingu, nema þær séu settar í samhengi við verðbólguna. Þannig að 1-5 prósent hækkun á hlutabréfavísitölu er skammgóður vermir, ef verðbólgan rýkur upp í 10-20 prósent.
Zero Hedge vefmiðillinn bendir einnig á að þessi glaðningur í hagkerfinu nái helst til nokkur hundruð þúsund manna, sem hafi verulegar tekjur af hlutabréfamarkaðinum, en hafi lítil áhrif á afgangin af 330 milljónum Bandaríkjamanna.

Comments
Powered by Facebook Comments