Hjól réttlætisins föst í feni bankaleyndar

 


Allt fast - Mynd CC Elsie esq.

Það er mikilvægt fyrir Íslendinga að hjól réttlætisins fari nú að snúast, en þau virðast föst í feni bankaleyndar og ef þau snúast, þá þeyta þau bara leðju á saklausan almenning í stað bófanna.

Í kaffiboðum landsmanna talar fólkið um ástandið milli þess sem það sporðrennir rjómabollum með kaffilíki.  Togarasjómaður á eftirlaunum býður sig fram, “Ef einhver gæti látið mig fá svona sæmilega góðan riffil, með leisimiði, þá skal ég bara fara á þingpallana og tína þá niður, allavega kerlinguna og einhverja aðra þjróta.”  Hann er auðvitað að grínast, en á bak við sýður óþol fólksins vegna þess að enginn er gerður ábyrgur fyrir ruglinu öllu.  Venjulega fólkið missir eignir sínar og þarf að kljást við stökkbreyttar skuldir og Icesave kúgun, en útrásarvíkingarnir eru ósnertanlegir, þeir hafa svo mikil réttindi.  “Það endar með því að einhverjir verða hengdir,” segja kaffigestir og dæsa, “fólkið tryllist á endanum.”

En stjórnvöld virðast vilja koma hjólum réttlætisins af stað á ný, þó þeir vilji helst að þau aki svolítið utan vega.  Setja 44″ mödder undir réttlætisvagninn, upptjúnaða vél og spóla í burtu frá hrunsvaðinu. 

Ögmundur syngur sama sönginn og Ragna, hann segist meðal allra stirðustu manna til að gefa ríkis-öryggis-lögreglunni forvirkar rannsóknarheimildir, en annað sé bara ekki hægt.  En rannsóknirnar eiga ekki að snúast um málefni útrásarvíkinga, bankstera, alþingismanna og fólksins í eftirlitsstofnununum sem brugðust með sögulegum hætti.

Nei, þegar réttlætið verður komið á 44″ mödder með upptjúnaðri vél, þá spólar það á eftir einhverjum vélhjólaköllum.  Eða kannski bara alls ekki.  Heldur á eftir þér og mér.  Vélhljólamennirnir eru bara yfirskin.  Þegar lögin eru orðin fær um að aka utan vega, þá eru allir vegir færir.  Fyrir valdsmennina, sem seldu landið í hendur IMF og þjóðina í skuldafangelsi.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments