
Líkt og í Bandaríkjunum hafa stjórnvöld í Bretlandi ákveðið að koma á fót ungliðahreyfingu fyrir öll ungmenni. Fyrir síðustu kosningar lofaði herra Brúnn(Gordon Brown) að koma á fót hreyfingu sem öll ungmenni Bretlands þyrftu að tilheyra og taka þátt í. Í grein sem birtist í News of the World sagði Brown eftirfarandi:
“Það er markmið mitt að skapa Bretland þar sem ætlast er til þess að öll ungmenni taka þátt í samfélagsþjónustu og þessi samfélagsþjónusta verði partur af uppeldi Breta.”
En hvað á hann við með orðinu “samfélagsþjónusta”. Jú, góðgerðarsamtök,önnur félagssamtök og fyrirtæki! Ríkið mun ekki koma beint að þessu heldur verða ungmenninn að sinna þessu fyrir utan skólatíma. Ríkið borgar að sjálfsögðu fyrir og hefur örugglega hönd í bagga. T.d. eiga þeir sem standa sig vel að fá stóran plús í kladdann og kannski betri vinnu hjá ríkinu síðar meir.
Nú er Brúnn hættur og herra Cameron tekinn við. En programmið heldur áfram og brátt þurfa fyrstu ungmenninn að taka þátt í spennandi heilaþvotti og byggja upp það sem Cameron kallar “the Big Society. Líkt og Brown þá vill Cameron að öll 16 ára ungmenni verði skylduð til að taka þátt. Því miður frestast þau áform eitthvað en ekki lengi ef eitthvað er að marka Cameron.
Þeir sem þekkja sögu Hitlersæskunnar ættu að sjá hér ákveðna hliðstæðu. Fyrst var byrjað smátt en eftir valdatöku Hitlers þurftu öll þýsk ungmenni að taka þátt í þessum ágætu samtökum. Hjálpa gömlum konum yfir götur og sýna ríkinu 100% hollustu. Klikkar ekki.

Comments
Powered by Facebook Comments