
Í Mexíkó er sveðjan, machete, tákn bændauppreisnar gegn kúgurum sínum, á sama hátt og heykvíslin er í Bandaríkjunum og Evrópu. Machete er heykvíslamynd sem hvetur til kynþáttafordóma… gegn hvítum.
Hollywood kvikmyndin Machete fékk góða aðsókn yfir frumsýningarhelgina og var 3ja mest séða myndin.
Í Mexíkó er mikið óréttlæti og misskipting. Landið er ríkt af auðlindum, ríkara en Bandaríkin, en auðurinn liggur hjá fáeinum lénsherrum og fjölskyldum þeirra, meðan almenningur er kúgaður og fátækur.
Draumur þessara fátæklinga hefur lengi verið sá að komast yfir til Bandaríkjanna og eignast betra líf. Það passar ágætlega inn í dagskránna og því er nú svo komið að landamæraeftirlit milli Bandaríkjanna og Mexíkó er bara til málamyndana. Mexíkóskir innflytjendur streyma inn, ásamt glæpagengjum og smyglurum og ákveðin svæði, Bandaríkjamegin við landamærin, eru nú risastór grá svæði sem varað er við að fara inná, því þar eru engin lög og regla lengur, glæpagengin ráða og svæðin eru í raun orðin hluti af Mexíkó.
Massainnflutningur á Mexíkönum til Bandaríkjanna þjónar mörgum markmiðum.
Vinna að Norðurameríkusambandinu hefur staðið yfir um árabil og er nú á síðustu metrunum. Eins og með Evrópusambandið, sem hélt upp á 50 ára afmæli sitt árið 2007, þá veit fólkið lítið um þetta brölt sem fer fram “í reykfylltum bakherbergjum”, eða bara bak við tjöldin. Þessi gríðarlegi straumur af innflytjendum gerir landamærin ógreinilegri, fólk fær það smám saman á tilfinninguna að það skipti engu máli hvort það séu landamæri á milli landanna eða ekki.
Innflytjendur fá auðveldan aðgang að velferðarsamfélaginu í Bandaríkjunum. Margir fá græna kortið og borgararétt og fara að kjósa. Þeir eru vanir Mexíkósku umhverfi, þar sem ríkið hefur meiri völd en í Bandaríkjunum og eru jákvæðir gagnvart alríkisstórninni örlátu og kjósa því með kerfinu í erfiðum málum, eins og til dæmis réttinum til að eiga skotvopn.
Svo er það enn eitt markmiðið, sem er gamla góða “deila og drottna” svikamyllan.
Á þessum erfiðu tímum sem nú eru og mun verri tímum framundan, þá er mikilvægt (fyrir elítuna) að fólk sjái ekki óvini sína heldur sé upptekið af því að hata hvert annað og berjast innbyrðis.
Þess vegna eru eðlilegir tilburðir Arizona og annarra ríkja til þess að reyna að koma á lögum og reglu á sínum svæðum svertir í stórstraumsmiðlum, og látið eins og þetta fólk séu einhverjir Ku Klux Klan karlar frá síðustu öld. En staðreyndin er akkúrat umvendis. La Raza er Ku Klux Klan nútímans, einkunnarorð hreyfingarinnar eru “fyrir kynþáttin, allt, fyrir hina, ekkert.” Kynþátturinn er auðvitað rómanskt ættaðir.
Kvikmyndin Machete kemur inn í þetta umhverfi til að kynda undir fordómum gegn hvítum. Rétt eins og kvikmyndin Birth of a Nation sópaði fylgi að Ku Klux Klan á sínum tíma, þá vonast elítan til þess að blása hatri í brjóst rómansk ættaðra Bandaríkjamanna og ólöglegra innflytjenda gegn hvíta manninum og hraði þeirri bylgju ofbeldis og yfirgangs sem þegar kraumar undir.
Fólk af rómönskum ættum er ekki verra en hvað annað. Almenningur í Mexíkó hefur lengi verið kúgaður af mikilli hörku. En í stað þess að taka upp sveðjurnar og losa sig við sína eigin spilltu og ómannlegu elítu, sem er í Mexíkó, þá vilja elítur allra landa sameinast við að sundra almenningi og hvetja nú til blóðugs kynþáttahaturs.
Ítarleg umfjöllun um Machete og ástandið í Bandaríkjunum má lesa hér:
‘Machete’ producers lied about racist bloodbath

Comments
Powered by Facebook Comments