Hermikrákumiðlar dala í vinsældum

Góðar fréttir!  Færri Bandaríkjamenn horfðu á hermikrákumiðlana á síðasta ári.  Áhorfstölur ABC og CBS fyrir fréttaþætti þeirra döluðu verulega.

En hvað eru “hermikrákumiðlar”?

Á bernskuárum kalda stríðsins (síðari hluta 5. áratugar síðustu aldar) gangsetti CIA leyniverkefni sem nefnt var Hermikrákuaðgerðin, en markmið þess var að kaupa áhrif á bak við tjöldin hjá stóru fjölmiðlunum og setja fréttamenn á launaskrá CIA.  En verkefnið varð ein alsherjar sigurganga sem enn höktir áfram, þrátt fyrir að fólk sé farið að treysta stórstraumsfjölmiðlunum verr nú á síðustu árum. 

Þessari viðleitni CIA til að ráða til sín bandarískar fréttastofnanir og fréttamenn, svo þeir verði í raun fulltrúar í áróðursdeild og dreifi áróðri var stjórnað af Frank Wisner, Allen Dulles, Richard Helms og Philip Graham (útgefanda Washington Póstsins).

Stefnt var að eignahaldi (áhrifalega, og eða fjárhagslega) á eftirfarandi miðlum: ABC, NBC, CBS, Time, Newsweek, Associated Press, United Press International, Reuters, Hearst Newspapers, SCripps-Howard, Copley News Service og svo framvegis, og 400 fréttamenn sem hafa í trúnaði sinnt verkefnum samkvæmt skjölum sem eru á skrá í höfuðstöðvum CIA, allt frá upplýsingaöflun til þjónustu sem milligöngumenn.

Á sjötta áratugnum hafði CIA smeygt sér inn í viðskiptafjölmiðla þjóðarinnar og háskóla, með tugum þúsunda fulltrúa sem hægt var að virkja til verkefna.  Dulles, forstjóri CIA, hafði mannað stofnunina nánast eingöngu með elítunámsfólki, sérstaklega frá Yale, þar á meðal var Herbert Walker Bush, sem er félagi í “Skull and Crossbones” leynisamfélaginu.

Margir Bandaríkjamenn halda enn í þá trú að við búum við frjálsa fjölmiðla, en fá á sama tíma flestar fréttir sínar matreiddar frá ríkisstýrðum sjónvarpsstöðvum sem beita fyrir sig blekkingunni um að fréttamenn eigi að “þjóna almenningi”.  Fréttamenn eru launþegar og þjóna eigendum fjölmiðlanna, sem láta venjulega fljótt undan ef auglýsendur eða valdamiklir menn úr viðskipta eða stjórnmálalífi eru óánægðir.

Róbert Parry skrifaði fyrstu fréttirnar um Iran-Contra hneykslið fyrir Associated Press, en þær fréttir voru hunsaðar á stórum skala af fjölmiðlum og þinginu.  Hann fór svo yfir til Newsweek, þar sem hann varð vitni að bælingu fréttar vegna pólitísks þrýstings.  Í bókinni ‘Fooling America: A Talk by Robert Parry’ segir hann:

“Fólkið sem nær árangri og fær umbun er fólkið sem ekki ruggar bátnum, sem skrifar ekki stóru fréttirnar, sem horfa undan þegar mannkynssagan spilar á sviðinu fyrir framan það og spilaði með, ýmist viljandi eða af hugleysi, í að blekkja bandarísku þjóðina.”

Þetta minnir mig á Crazy-Horse Kristinn, sem var látinn fjúka frá RÚV, þrátt fyrir að vera eini ljósi punkturinn í starfi þeirrar fúnu stofnunar um áratugi.

Ítarefni:
http://www.prisonplanet.com/analysis_louise_01_03_03_mockingbird.html
http://www.infowars.com/mockingbird-news-media-viewership-declines-sharply/

Mynd í almannaeign og tekin af Mark J. Rebilas
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments