
Orðum skrýddur herlæknir til 18 ára hefur verið ákærður fyrir að óhlýðnast skipunum eftir að hafa neitað að fara á vettvang í Afganistan, því hann efast um að Barack Óbama sé lögmætur forseti.
Terrence Lakin ofursti, háttsettur læknir í Bandaríkjaher sagði ferðaskipanir sínar ógildar því að foringi þjóðarinnar hafi brugðist þeirri skyldu að sýna fram á að hann sé fæddur í Bandaríkjunum, samkvæmt frétt CNN. Lögum samkvæmt þá geta einstaklingar aðeins orðið forsetar séu þeir fæddir í landinu.
“Ég er ekki sekur af þessum ákærum og mun krefjast sýknu , því ég er sannfærður um að foringi herliðsins [forsetinn] kunni að vera ólögmætur samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna til að þjóna í æðstu stöðu þjóðarinnar,” sagði Lakin.
“Ef Óbama forseti er innfæddur borgari, þá á bandaríska þjóðin skilið að sjá sönnun þess og ef hann er það ekki, þá tel ég þessar skipanir ólögmætar,” bætti hann við.
Lakin er ekki einn um þessa skoðun á lögmæti Óbama sem forseta. 25% Bandaríkjamanna efast um að forsetinn sé fæddur Bandaríkjamaður.
Mynd CC Lance Page / t r u t h o u t; Adapted: Amanda Currier, Nathan Barry

Comments
Powered by Facebook Comments