Héldu að flugfarþegi væri bin Laden

Mynd CC Daniel Morris

Nú þegar Ósama bin Laden er loksins opinberlega látinn og hættur að grýla vesturlönd, þá mætti halda að aftur megi fara að grínast í öryggiseftirlitinu á flugvöllum.

En það virðist einhver misskilningur.  Innritunarstarfsmaður á JFK grunaði drukkinn farþega um að fela fleiri brennivínsflöskur í handfarangri sínum og spurði, “Hvað ertu með í töskunni?” 

Maðurinn, Christian Boncorps, 61 ára svaraði af bragði, “Ég heiti bin Laden og ég er með sprengju í töskunni minni.”

Eitthvað hefur innritunarstarfsmaðurinn verið utan við sig, nýbúinn að skoða farseðil og vegabréf og búinn að gleyma að bin Laden var tekinn af lífi fyrir tveimur dögum, samkvæmt opinberu kenningunni, því hann klagar manninn til lögreglunnar.

Nú verður fréttin ruglingsleg eftir þennan hluta, því Paul Nuziato, foringi hafnarlögreglunnar varð brjálaður þegar hann frétti af atvikinu.  “Við vorum heppinn að farþeginn var ekki alvarleg ógn,” sagði hann.  Miðafulltrúinn virðist ekki hafa meðhöndlað málið nógu rétt, þó hann hafi klagað karlgreyið. 

Það er greinilegt að yfirvöld eru sjálf ekki alveg viss um opinberu söguna, þannig að ef einhver segist vera Ósama bin Laden, sama þó það sé drukkinn franskur herramaður, þá finnst þeim að þeir þurfi að skoða málið betur og þeim finnst einnig prófessíónal að verða ofsareiðir gagnvart flugvallarstarfsmönnum og / eða farþegum. 

http://www.myfoxdc.com/dpp/news/drunk-man-at-jfk-airport-tells-ticket-agent-i-am-bin-laden-and-i-have-a-bomb-050311

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments