Nú berst fólk af krafti fyrir vali sínu í Icesave kosningunum sem framundan eru. Í grunninn má segja að tvenns konar barátta sé háð; Köld og ‘fagleg’, eða heit og tilfinningarík.
Flestir munu væntanlega segja að köldu rökin virki best á þá, en í raun er það öfugt. Það er ástæðan fyrir því að þegar lyf eru auglýst í bandarísku sjónvarpi, þá eru það hoppandi ellilífeyrisþegar, glaðir og sprækir að spila golf, eða hlaupa á eftir barnabörnum sínum sem birtast á skjánum, en ekki staðreyndir eða rök. Það er rétt í endann sem tugir aukaverkana fljóta á mesta hraða yfir skjáinn, jafnvel lesnar upp af óðamála þulum, en það er ekki til að selja, heldur til að uppfylla reglugerðarákvæði. Hoppið og hamingjan selur. Þau eru hamingjusöm, þau taka eitthvað lyf, kannski ég verði hamingjusamari og eignist fleiri vini ef ég fæ sama lyf?
Hvað finnst þér? Hér hef ég klippt út mín uppáhalds “heitu” rök. Þetta fólk er raunar að fjalla um raunveruleg rök fyrir nei atkvæði sínu, en á bakvið skynjum við tilfinningar þeirra, og það er áhrifarík blanda. Sennilega er bankakonan áhrifamest, allavega fyrir mig. Neðar er svo mjög vel fluttur kaldur fyrirlestur.
Þetta er uppáhalds kaldi fyrirlestur Gullvagnsins. Erfitt að greina tilfinningar hjá fyrirlesara, hann gerir örugglega sitt allra besta til að fela þær (mistök að mínu viti), en rökin eru sterk og vel fram sett.
Hvort virkar betur á þig?
Dómstólaleiðin útskýrð – Reimar Pétursson from ADVICE on Vimeo.
Að lokum, til að friðþægja þá sem telja að öll sjónarmið eigi að koma fram, hér er söluræða fyrir ESB. Hún kallar það réttilega “syndrome” eða heilkenni. Sama unga kona hefur látið auglýsa stuðning sinn við Já atkvæði á feisbúk.

Comments
Powered by Facebook Comments