Hefur þú sofið hjá Rick Perry?

Rick Perry, mynd CC Gage Skidmore

Rick Perry er óskaframbjóðandi báknsins á vegum bandaríska rebúblikanaflokksins til forsetakosninga 2012.

Hann hefur fullan stuðning báknfjölmiðla, sem lýsa hann sigurstranglegastan áður en nokkrar mælingar hafa verið gerðar, bræðra sinna í Bilderberg hópnum og meira að segja Óbama kosningavélarinnar, sem hefur lýst því að helst vildu þeir keppa við Perry.  Ekki ósvipað því hvernig Fréttablaðið reynir að byggja Bjarna Benidiktsson upp sem helstu baráttuhetjuna gegn ESB.

En menn komast ekki að kjötkötlunum aðeins með klíkuskap og kosningasvindli, þannig að einhvernvegin þarf Perry að höfða til kjósenda.  Hann gerir það á hefðbundnum bandarískum hægri gildum.  Hann hefur sveipað sig í sauðsgæru andstöðu gegn Seðlabankanum hf, baráttumál sem hann fær að láni frá frambjóðenda fólksins, Ron Paul, sem hefur raunverulega barist gegn Seðlabankanum alla sína stjórmálatíð. 

Hann þykist á móti þeim baráttumálum sem eiga meiri samúð hjá bandarísku samfylkingunni, svo sem umhverfisverndarsköttum og þeirri fölsku pólitík sem fylgir söfnuðinum um ‘hnattræna hlýnun.’  Það plagar hann þó nokkuð að útvarpsmenn eins og Alex Jóns eru sífellt að minna fólk á að hann var kosningastjóri Al Gore á sama tíma og hann var byrjaður að baula sinn falska umhverfissöng.

Hann þykist nú styðja frelsi einstaklingsins, þar á meðal valfrelsi um bólusetningar.  Aftur eru jaðarfjölmiðlarnir að þvælast fyrir honum og hafa rifjað upp hvernig hann hélt því ranglega fram að HPV bólusetning ungra stúlkna væri lögboðin nauðabólusetning.  Hann hefur þurft að biðjast afsökunar á því og segja að það hafi verið rangt af honum að vinna af slíku kappi fyrir lyfjafyrirtækin gegn fólkinu.

Að lokum þykist hann vera heiðvirður fjölskyldumaður og kristinn með afbrigðum, kemur fram með sjónvarpsprestum sem ganga hvað lengst í að fordæma homma og ósiðlegt líferni.

En sögurnar ganga nú og hafa alla tíð gengið um litríkt skemmtanalíf Perry og framhjáhöld.

Hér er viðtal Alex Jóns við Robert Morrow, fulltrúa í rebúblikanaflokknum, sem vill ekki líða þessa hræsni, það er að segja, þessa kristilegu hræsni. 

Þar segir af “hirð”  Rick Perrys, menn sem finna ungar og sætar stelpur (e: hotties) og bjóða þeim í partí.  Morrow segir frá nektardansmey sem voru boðnir 500 dollarar “bara til að byrja með” ef hún kæmi með manni nokkrum.  Hún samþykkti það, enda svipuð upphæð og hún fær allt kvöldið á klúbbnum.  Þegar hún svo kemur á hótelið, þá tekur Rick Perry þar á móti henni og er svo uppkókaður, segir stúlkan, að hún gat ekki fengið geysi til að gjósa þrátt fyrir heilmiklar tilfæringar.  Hún fékk svo greiddar þúsundir dollara fyrir viðvikið, nokkuð sem Morrow telur benda til þess að Rick og “hirðin” fái mútugreiðslur framhjá sínum opinberu tekjum, því þetta var bara ein stúlka og eitt kvöld, en hann hefur sögur um stór kynsvöll þar sem Perry og hirðin lifa glæstu stóðlífi.

Þó Morrow þekki a.m.k. tvo aðila úr kynlífsiðnaðinum sem hafa staðfest þessar sögur um kvöldfundi Perrys, þá vantar honum fólk (Perry er sagður tvíkynhneigður) sem er tilbúið að vitna opinberlega um þessi dýru hlaðborð Perrys og bestu bitanna á kjötmarkaðinum.  Þess vegna hefur hann keypt heilsíðuauglýsingu í Austin Chronicle þar sem hann biður fólk sem sofið hefur hjá Rick Perry að gefa sig fram.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: