Harpa helvítis er tákn tónlistarhússins

Nýtt merki Hörpu tónlistarhúss verður notað í fyrsta sinn á ferðaráðstefnu í Frankfurt í næstu viku.  En hvað táknar merkið?

Vafalaust eru margar túlkanir á því, en hér eru mínar athuganir, svona við fyrstu sýn.

Merkið er gert úr 12 tónsprotum, en tónsprotarnir hafa 3 endapunkta hver um sig, og minna á mann, eða kannski risa, sem gnæfir yfir þig, þegar horft er á “aðalsprotann”, þennan rauða sem er neðstur.  Ef horft er á alla sprotana saman, þá líkist fyrirbærið jafnvel enn meira risa, með risavaxnar klær sem teygja sig niður til þín, í hinum tveim lituðu sprotunum.

Lituðu sprotarnir eru 3, þrenningin, ekki endilega sú heilaga.  Þrír sprotar með 6 punkta út og þrjá punkta inn, eða 3-6, þrisvar sinnum sex, eða til samans 9, sem er tala stoltsins, þar sem allar tölur margfaldaðar í níu verða aftur að níu, svo sem 2×9 verður 18 eða 1+8, 7×9 verður 63 eða 6+3.  Talan níu er tala Lúsifers.   Hún innifelur tölu Satans (6) og drekavantaskrímslisins Levjatans (3), og þar með 666. 3+6 eru 9 og 3×6 eru 18 eða 1+8.

Séu allir punktar sprotanna taldir, líka þeir gráu og “ómerkilegu”, þá eru þeir 36, eða 3+6, samtals 9.  Ytri röð hefur 24 punkta, 2+4 = 6, innri röð 12, 1+2 = 3. 

Saman mynda þeir sem sé eina heild, en einn er einmitt tala Belials, eða Baals, gullkálfsins.  Heildin er sem sé guðlegur risi (geislabaugur), eða sól sem skín, stjarna með 24 geisla út frá 12 punktum, þar af er einn mestur og þrír betri en hinir.

Sé farið inn á harpa.is og lesið um forsögu hússins má sjá að þeir reyna að tengja hana inn í hina heilögu tölu alþingishússins okkar, 1881 (1+8+8+1 = 18 = 9): “Talið er að árið 1881 hafi birst fyrsta áskorunin um byggingu tónlistarhúss í blaðinu Þjóðólfi.”

Vorið 2011 er stefnt að því að Harpa tónlistar og ráðstefnuhús verði opnað með pompi og prakt.  Ég spái því að þeir reyni við einhvern dag, þar sem þversumman verður 9!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,