Hagfræði lífeyrissjóða í Grasrótarmiðstöðinni

Mynd CC skippyjon
Laugardaginn 11. febrúar kl 13:00
Grasrótarmiðstöðin, Brautarholti 4
Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, leiðir næsta laugardagsfund sem verður haldinn í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Fundurinn hefst kl. 13:00 laugardaginn 11. febrúar en þar mun Ólafur fjalla um lífeyrissjóðakerfi landsmanna.
Í umfjöllun sinni mun Ólafur fara yfir forsendur fyrir þróun og fjárhagsstöðu lífeyrissjóða. Auk þess sem hann mun ræða um hætturnar sem steðja að lífeyrissjóðum landsmanna og nauðsynlegar úrbætur í ljósi nýútkominnar skýrslu nefndar sem starfaði á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða.
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Ólafur Ísleifsson er meðal þeirra hagfræðinga sem hafa verið ómyrkir í gagnrýni sinni á stjórn efnahagsmála í landinu, þ.m.t. fjármál lífeyrissjóðanna. Það má því búast við virkilega áhugaverðu erindi og eldfjörugum umræðum í framhaldinu.
Bent skal á að viðburður hefur verið stofnaður inni á Facebook til að auglýsa þennan fund (sjá hér). Grasrótarmiðstöðin er líka komin með heimasíðu þar sem viðburðir á vegum grasrótarinnar eru auglýstir (sjá hér)
Laugardagsfundirnir eru orðnir fastur liður í dagskrá Grasrótarmiðstöðvarinnar. Þeir sem hafa leitt fundina hafa bæði verið einstaklingar og fulltrúar grasrótarhópa sem hafa verið virkir í viðspyrnunni frá hruni. Á þessu ári hafa nú þegar verið haldnir þrír slíkir fundir. Á þeim hafa fulltrúar Öldu: Félags um sjálfbærni og lýðræði kynnt tillögur sínar um lýðræðislegan stjórnmálaflokk, formaður Hagsmunasamtakanna sagt frá kröfunum á bak við undirskriftarsöfnun Samtakanna og viðtökum stjórnvalda og síðasta laugardag útskýrði Jón Þór Ólafsson, höfundur bókarinnar „The Game of Politics“ hvaða leiðir væru vænlegastar til árangurs í viðleitninni við að hafa áhrif á stjórnvöld. Gestir á þessum fundum hafa að jafnaði verið á milli 50-70.
Fyrirlestrarnir sem hafa verið fluttir á þessu ári hafa verið teknir upp og eru tveir þeir fyrstu aðgengilegir á myndbandsvefnum You Tube (sjá t.d. þessa klippu úr fyrirlestri Andreu J. Ólafsdóttur, formanns Hagsmunasamtaka heimilanna)
Lyklar:grasrótarmiðstöðin








