Þið hafið engin völd

Þessu er beint til ykkar, sem klæðist dökku búningunum, eða eruð í stjórnsýslunni og þjónið kerfinu:  ÞIР HAFIР ENGIN  VÖLD

Einu gildir hvort þið eruð í lögreglunni eða landhelgisgæslunni, alveg sama hvað þið hafið margar stjörnur eða strípur á búningnum ykkar, eða hvaða armi valdstjórnarinnar þið tilheyrið, hvort sem þið hrellið mótmælendur, stundið eftirlit, hendið fólki úr húsum sínum, seljið landið og auðlindir í hendur erlendra ríkjasambanda eða auðhringja, það skiptir ekki máli. 

Þið hafið engin völd.

Það er búningurinn ykkar sem hefur valdið.  Farið úr búningnum, setjið hann inn í skáp, hvar er valdið ykkar nú?

Fáið ykkur annarskonar vinnu, hvar er valdið ykkar núna?  Þið hafið engin völd.

Starf ykkar er að gefa búningnum líf, búningurinn er armur valdstjórnarinnar, og það er allt og sumt sem þið eruð.  Þess vegna skiptið þið engu máli.  Það má hvenær sem er fórna ykkur.  Ef þið eruð lögsótt fyrir aðgerðir í starfi, þá er líklegast að valdstjórnin komi ykkur ekki til hjálpar. 

En það sem verra er, á sama tíma og þið gefið ykkur í þessi störf, og þið fórnið réttlæti fyrir valdboð, verðið sífellt ómannlegri meðan þið aðstoðið við þessi fasísku umskipti, þá má vera að samband ykkar við harðstjórnina sé bærilegt, en börn ykkar þurfa að erfa þennan heim sem þið aðstoðið við að koma á koppinn. 

Einn daginn þurfið þið að skilja þær afleiðingar, og ég öfunda ykkur ekki af því andartaki, því það á eftir að verða skelfilegt þegar þið áttið ykkur á þeim heimi sem þið hafið skapað.

Fólkið í búningunum og jakkafötum stjórnsýslunnar, þið verðið að gerast óhlýðin.  Reynið að manna ykkur upp, skoðið ástandið og hvert stefnir, og sýnið einhvern dug, áður en þið og félagar ykkar komið á kerfi sem verður hryllilegt fyrir afkomendur ykkar.

—-

Þetta er mælt til bandarískra og breskra fulltrúa, en íslenska lögreglan er ekki svo langt á eftir, og sumir þar á meðal virðast varla geta beðið eftir að komast í þrælapískana (teisana) og þetta á því alveg sama erindi til okkar manna.  Auk þess á þetta erindi til fólksins sem vinnur hjá fjármálafyrirtækjunum og innheimtufyrirtækjunum, sem hafa sýnt ótrúlega illa hegðun við að elta uppi fólk sem ekki ræður lengur við stökkbreyttar skuldir, engin samúð sýnd þar á bæ og oft smurt ólöglega og ósiðferðilega ofan á skuldasúpuna.

Ef fólk getur unnið á daginn við að eyðileggja líf annarra með lygum og ólöglegum aðgerðum og svo grillað á kvöldin með fjölskyldu og vinum, hver er þá munurinn á þeim og þýsku þjóðinni sem vann fyrir nasista í seinni heimstyrjöldinni?

Það er einn munur.  Það er enginn að miða byssu á þetta lið ennþá, engin kúgun, ekkert sem knýr þessi smámenni, nema ástin á peningum.

Upprunaleg ræða er flutt af krafti í þessu myndbandi, hefst um það bil á tímanum 5:30.

Mynd CC hfb
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: