Þægilegt er að grípa í bita sem nálgast má í skyndi og ég er sekur um að gera það oftar en mér er hollt. En nú er tækifæri til að bæta ráð sitt, því pizzastaðir virðast ríða á vaðið með verulegar verðhækkanir dulbúnar sem ný tilboð.
Ég fann matseðil Dominos meðal pósts síðustu viku. Með matseðlinum eru sérstök tilboð á afrifum sem hægt er að nýta sér til að fá sérlegan afslátt. Svo seilist ég í tilboðin þegar ég nenni ekki að elda… en hvað er að sjá? Tilboðin líta út eins og fullt verð fyrir áramót!
Reiðin blossar upp og ég æði á netið til að panta frá keppinautinum í plássinu, ‘Langbest pizzum’. En þar er að finna “Ný Pizzatilboð”, sem er auðvitað PR slangur fyrir hærri verð. Sýnist að í báðum tilfellum sé skammturinn að hækka um sirka 200 til 600 krónur. Í tilfelli Langbest hækkar ‘gamla’ tilboðið úr 1.800 krónum fyrir 16″ pizzu með 2 áleggjum og 2L gos yfir í ‘nýtt’ tilboð upp á 2.400 krónur. Það er 33%, þriðjungshækkun.
Nei – nú tekur maður bara upp pottinn og setur upp þverskorna ýsu!

mynd: Matt Ryall
Já glatað!, langbest eru samt með betri verð og betri pizzur
Svá góðr
0