Gullvagninn tapar sér í Vantrúnni

Sú skelfilega frétt barst um ranghala netsins að sjálfur höfuðpaur Kryppunar, Gullvagninn, væri búinn að tapa sér.  En þessari spurningu varpar Jón Frímon æðstistrumpur ESB á Íslandi fram á Vantrúarspjallsíðunni, Vantrú.is.  En Jón segir:

“Hvenar ætli það gerist að kryppa.com liðið tapi sér alveg ? Þeir hafa nefnilega orðið stöðugt ruglaðri með hverjum mánuðinum núna. Þeir hafa einnig verið að kenna mig við einhverja heimsendaspámenn í BNA sem eru einnig að ganga af göflunum þessa dagana (eins og venjulega reyndar).
Einhverjar ágiskanir um það hvenar þetta lið tapar sér alveg ?”

Upphaf orða Jóns má rekja til sakleysilegrar færslu um kollega Jóns Frímans í Bandaríkjunum sem spáir fyrir eldgosum og náttúruhamförum eftir bestu getu, alveg eins og Jón sjálfur.  En þar sem Jón þolir ekki að það sé skrifað um hann án þess að viss stefgjöld séu greidd þurfti hann að fá útrás.  Sú útrás er oftast í formi spjallþráðar á þessum fína spjallvef öfgahópsins Vantrú.

Einn félagi Jóns í Vantrú, Hafþór Örn, svarar ákallinu og telur það vera ómögulegt að spá fyrir um það.  Þegar þessum orðum sleppir hendist inn á ritvöllum maður að nafni Hjalti og eins og sönnum Vantrúarmanni sæmir bendir hann Jóni á hugsanlega villu í sínum málflutningi.

“Þessi spurning gefur sér þá forsendu að kryppa.com liðið hafi ekki þegar tapað sér alveg”

Mikið rétt mælir Jón Frímún á móti.  Þennan möguleika hafði hann ekki skoðað ofan í kjölinn vegna tímaskorts.  Kannski var Jón svona upptekinn við að baka smákökur eða skrifa fræðslubækur um kvennakáf á erlendum spjallsíðum.  En um þann afkima netsins hefur Jón skrifað fjölda smáverka og gefið út á heimasíðu sinni við góðan orðstír.  En gefum Jóni nú orðið:

“Það er náttúrulega alveg möguleiki á að það hafi auðvitað gerst nú þegar.
Ég hef hinsvegar ekki haft tíma til þess að skoða þann möguleika. Það er auðvitað alveg skelfilegt ef að þetta lið er búið að tapa sér alveg.
Vegna þess að þá eykst bullið svo mikið í þessu fólki.”

 

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments