Grísku eyjarnar fyrir þeirra Icesave?

GramvousaAllir hafa sinn Icesave djöful að draga, Icesave er bara okkar útgáfa af einkavinavæðingu eigna og ríkisvæðingu skulda.  Hvert leiðir þetta svo?  Jú, eins og einu sinni var sagt, ef við semjum við hryðjuverkamenn, þá ganga þeir á lagið þar til ekkert er eftir. 

Þýskaland stingur upp á því að Grikkir láti þjóðverja hafa eyjarnar sínar gegn greiðslu, eða kannski frekar, gegn fjármögnun.  Þetta er innsýn í okkar framtíð, þegar við náum ekki að greiða af icesave skuldbindingum, vöxtum af öllum lánunum sem okkur er sagt að við verðum að taka til að … ja, veit einhver til hvers?  En svipað tekur svo við.  Hvað eigum við svo sem þjóð eftir allt Icesave og ríkisvæðingu skulda?  Ekkert, við verðum þrælar í eigin landi, öfugu megin við skilin milli aðals og þýs í nýrri heimsmynd, gamla lénsherraveldinu. 

Við og allur almenningur í öllum löndum missum allar eignir, allt velferðarkerfi, öll réttindi.  Fámenn elíta nýrra lénsherra og aðalsmanna ríkir sem kóngar, yfirstétt eins og í gamla Sovétinu.

‘We give you cash, you give us Corfu!’ German MPs suggest Greece sell its islands (and the Acropolis) to pay off i
ts debt

Creative Commons License mynd: bazylek100

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments