Sumir verða foj yfir því að vera myndaðir á almannafæri af öðrum borgurum. En fáir sjá neitt athugavert við endalausar öryggismyndavélar sem spretta upp út um allt.
En er ekki fólk að fylgjast með þessum öryggismyndavélum? Er það eitthvað örðuvísi en að vera myndaður af samborgurunum? Að einu leiti, já, öryggismyndavélarnar eru myndataka úr algeru launsátri, en götuljósmyndarar eru venjulega sýnilegir.
Þessi stúlka er dáleidd af símaskjánum sínum, hún er að senda sms meðan hún labbar. Svo labbar hún beina leið út í gosbrunn.
Öryggisliðið hlær og skemmtir sér, kallar á hina og endurspilar. Svo hlægja þau yfir því að stelpan þurfi að fara holdvot út í kuldan. Engum dettur í hug að reyna að hjálpa henni, bjóða sturtuaðstöðu eða handklæði.
Fyrir nokkru sögðum við frá atviki á flugvelli þar sem þrýstinn barmur fallegrar skutlu skaust úr böndum sínum við öryggisleit, og blasti skyndilega við öryggisfólki og farþegum. Þetta fannst öryggisliðunum svakasniðugt, og ungur foli brokkaði yfir til stúlkunnar, þar sem hún beið handan öryggishliðsins eftir að komast í flugvélina, til að segja henni að hann hefði misst af atvikinu, en hlakkaði til að skoða það á öryggismyndböndunum.

Comments
Powered by Facebook Comments