Vantrú er hópur manna sem segist ekki trúa neinu. Þetta er nú kannski ekki alveg nákvæmt orðalag hjá mér. Þetta er hópur sem berst gegn boðun hindurvitna í íslensku samfélagi. Herferð þessari er m.a. beint gegn íslensku ríkiskirkjunni og því sem hún boðar. Múslimar fá líka rækilega á baukinn og allskyns kuklarar sem þykjast geta breytt vatni í vín eða talað við dauða. En hér er ekki látið staðar numið heldur hjólað í alla þá sem ekki taka mark á opinberu söguskýringunni um atburðina 11. september eða Mexíkanaflensunni ógurlegu. Hversu fáránlega sem það nú hljómar þá virðast Vantrúaðir líta á þennan hóp sömu augum og brjálaða múslima með kerlingar í búrkum í eftirdragi.
Gagnrýni á fárið í kringun SvínaMexíkanaH1n!flensuna setur Vantrú í sama flokk og trú á drauga, fljúgandi furðuhluti, álfa eða jafnvel engla. Þó engin hafi beinlínis haft fyrir því að afsanna að þessi flensa tengist fljúgandi furðuhlutum þá er þetta ansi langsótt nálgun. Heilbrigð skynsemi er nefnilega ekkert heilbrigð ef hún gangrýnir spillingu innan WHO eða kostaðar lyfjaauglýsingar í öllum fréttatímum heims. Í hugum fulltrúa Vantrúar eru fullyrðingar eins og : “… and there’s no downside to the vaccine: after 60 million flu vaccinations in the U.S., there hasn’t been a single reported case of injury due to the vaccine.” heilagri en allt heilagt í Kóraninum. Dæmin sem sýna fram á hið gagnstæða er orðin fleiri en núll, talsvert miklu fleiri.
Auðvitað skiptir sannleikurinn engu máli í hugum Vantrúarmanna eins og sést best þegar þeir drulla yfir alla þá sem hafa aðra skoðun en Bush á 11. september. Af hverju þeir eru að verja Bush og opinberu söguskýringuna er spurning en á heimasíðu sem tengist Vantrúuðum er vísað í 911myths.com síðuna máli sínu til stuðnings. Þessi síða inniheldur allskonar tilvitnanir í hina og þessa til mótvægis við einhverjar “samsæriskenningasíður”. Síðan þykist vera gerð til að upplýsa almenning og hjálpa honum til að mynda sér sínar eigin skoðanir á 11. september. En þegar maður les síðuna eru jafnvel vel þekktar staðreyndir á borð við að Bin Laden fjölskyldan fór í flýti frá USA eftir árásirnar og Al Ciada er ekki skipulögð hryðjuverkasamtök gerðar tortryggilegar. Hlutlaus upplýsingasíða, ha ha.
Eftir þennan inngang erum við kannski komnir að kjarna málsins. Síður sem taka að sér að verja t.d. stjórnvöld eða bloggarar sem skjóta upp kollinum allstaðar í sama tilgangi eru oftast á launum við þá iðju. Stjórnvöld eða hagsmunaaðilar borga viðkomandi laun. Nýlega komst upp um stjórnvöld í Canada en þau borguðu fjölmiðlafyrirtæki 75.000 dollara fyrir að vakta spjallsíður og bregðast við gagnrýni netverja. Hér er auðvitað ekkert nýtt á ferðinni því stórfyrirtækið Monsanto lét fjölmiðlafyrirtæki sitt verja erfðabreytt matvæli í skjóli “gerfieinstaklinga”.
Hvort Vantrúðir eru alvöru eða gerfi geta lesendur Kryppunnar velt fyrir sér en þeir eru a.m.k. ansi duglegir að verja opinberar samsæriskenningar.

mynd: aturkus

Hidden due to low comment rating. Click here to see.
Óvinsælt. Gott eða slæmt:
0
thad er eingan veginn haegt ad likja kryppunni vid vantru! Their sem vita sannleikan augljoslega vita hluti sem vantru veit ekki! their sem tengja punktana saman og vita og sja hvad er i gangi eru hid eina “frelsada” folk sem vid sjaum i dag.. samsaerid er raunveruleikin og hinir blidnu munu sennilega aldrei vakna! Ad trua engu hljomar mjog heimskulega fyrir mer i ljosi thess ad augljoslega bjo eithvad allan alheimin til!! annars vaerum vid ekki her til daemis.. kanski vantru seu afleidingar thess sem alex jones og david icke kalla mind control methods… Ekki ad eg se ad radast a vantru , vomandi virkar svona hugsanahattur fyrir tha
frjals vilji! Their hljota ad geta virt thad?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
7
magus : Að ræða við Vantrúarmeðlim um svínaflensuna gefur þér álíka mikið og að ræða við vott um blóðgjafir. Menn eru bara sannfærðir og það er ekkert að fara að breytast.
Vantrú er samt ákaflega viðkunnalegur félagsskapur að mestu sem meikar mikinn sens. Stofnmeðlimir eru kannski svolítið ruglaðir, þá sérstaklega einn þeirra, en maður þarf bara að kunna að velja út ruglið hverju sinni.
Sjálfur er ég stoltur efasemdar-samsæriskenningarsinni sem líkar bæði við Vantrú og Kryppu þó ég sé alls ekki sammála öllu sem frá þeim aðilum kemur.
Ég vona bara að báðir aðilar haldi inni starfsemi áfram sem lengst, enda löngu kominn tími á að hrista hér upp í úr sér gengnum gildum sem halda góðu fólki niðri.
Ég hvet alla til að eyða hálfu ári eða svo með Vottum Jehóva. Það kennir fólki meira en menn halda, bæði um trúaða, vantrúaða og samsæriskenningasinna. Svo er ekkert að því að vera álitinn ruglaður. Það er ekki tákn um góða geðheilsu að vera vel liðinn í rugluðum heimi.
Heit umræða. Hvað finnst þér?
12
Ég þekki “Vantrú” nú ósköp lítið, nema hvað að ég hef fylgst aðeins með spjalli þeirra á Moggablogginu. – Og þeir hafa nú fyrst og fremst gaman að því að rökræða, trúmál amk. Ég man ekki eftir því að hafa rætt “samsæriskenningar” við þá, en það væri kannski athyglivert verkefni, þ.e. að efna til smá debat um hryðjuverk og flensur og annað……
Það gætu orðið skemmtilegar rökræður, því Vantrúarmenn verða að halda sig við rökin til að vera samkvæmir sjálfum sér…
Heit umræða. Hvað finnst þér?
7
Ég ætla nú að leyfa mér að efast stórlega um að Vantrú lifi á styrkjum einhverrar elítu eða hagsmunaaðila. Ég tel það líklegra að flestir líti á Vantrú svipuðum augum og menn horfa á þennan miðil, þ.e. sem einhverja rugludalla. Ég leyfi mér líka að efast um að almennt sé horft til Vantrúar sem aðila sem skipti miklu máli í umræðunni yfir höfuð og því frekar tilgangslaust að styrkja þá fjárhagslega.
Ég hinsvegar vona að báðir aðilar haldi sínum síðum úti sem lengst, enda höfða þær mjög til mín sem efasemdar-samsæriskenningasinna
Heit umræða. Hvað finnst þér?
8
Ég hef stundum haldið að félagarnir í Vantrú væru bara svona steiktir að nenna að elta og skammast í trúuðu fólki hér í netheimum. En að þeir væru styrktir til þess skýrir málið betur. Hvar fær maður svona styrki?
Heit umræða. Hvað finnst þér?
11