Loftið lekur úr stóru grænu lygahoppuköstulunum

 

Það eru 40 ár frá fyrsta ‘degi jarðarinnar’.  Skoðum nú aðeins hvernig spádómar og brennisteinsumræða grænu loftbelgjanna hafa staðist tímans tönn.

Alan Caruba skrifar um málið og segir:

Þegar seinni heimsstyrjöldin gekk yfir árið 1945 rákust ítalskir samflokksmenn á Benito Mussolini og kærustu hans þar sem þau voru að reyna að flýja til Sviss.  Þau voru bæði skotin og hengd upp á hælunum á Loreto torgi í Mílanó.  Hann leiddi þjóðernisfasistaflokkinn og var fertugasti forsætisráðherran frá árinu 1922 þar til honum var steypt af stóli, fangelsaður og bjargað af vini sínum Adolfi Hitler.

Þessi minning skaust upp í huga mér þegar ég las lista spádóma frá degi jarðarinnar árið 1970, því fyrr eða síðar, þá falla allar lygar saman og lygarana verður að gera ábyrga.

“Við höfum svona fimm ár í mesta lagi til að gera eitthvað í málinu,” sagði Kenneth Watt, vistfræðingur, þegar spurt var frétta af hnattrænni hlýnun.

“Hinn siðmenntaði heimur mun enda innan 15 til 30 ára ef ekki verður tafarlaust brugðist við gegn þeim vanda sem blasir við mannkyninu,” sagði George Wald, líffræðingur frá Harvard.

“Það er óumflýjanlegt að fjölgun manna mun algerlega þjóta framúr öllum þeim smávægilegu viðbótum við fæðuframleiðslu sem mögulegar eru.  Dánartíðnin mun aukast þar til að minnsta kosti 100 til 200 milljónir manna munu deyja árlega úr hungri á næstu 10 árum,” spáði Paul nokkur Ehrlich, líffræðingur frá Stanford háskóla og rithöfundur, en engar af spám hans hafa ræst.

Það eru 40 ár frá fyrsta degi jarðarinnar.

Þá víkur sögunni að sjálfsögðu til mesta raðlygara okkar tíma, fyrrum varaforseta Bandaríkjanna, Al Gore, höfundar “Earth in the Balance”, aðalleikarinn í “An Inconvenient Truth,” nóbelsverðlaunahafa, óskarsverðlaunahafa og svo sannarlega verðugan mann til að hengja táknrænt á hælunum upp fyrir afneitun, lítilsviðringu og vansæmd.

Steve Milloy frá JunkScience.com og GreenHellBlog sagði frá því hvernig Al Gore lýsti  á símafundi með stuðningsfólki að í baráttunni um að koma á Cap-and-Trade [banna og leigja] reglugerð, sem þvingar takmörkunum á svokallaðar gróðurhúsaloftegundir og skapar “losunarheimildir” sem hægt er að kaupa eins og aflausnarbréf miðalda til að þvo burtu syndir, að þar hafi “alríkisstjórnin brugðist okkur.”

Nei, það sem brást er hin langa, vægðarlausa og algerlega ósanna herferð sem átti að sannfæra fólk um að “hnattræn hlýnun” væri raunveruleg og alvöru ógunum við Jörðina.  Hún var það aldrei, því hún er fullkominn skáldskaupur.  Það er að segja, sá hluti sem snéri að hrikalegri hækkun á hitastigi jarðarinnar.  Jörðin er 4,5 milljarða ára gömul og hefur gengið í gegn um röð ísalda og hlýindaskeiða frá upphafi daga.

Lesið upprunalegu greinina og niðurlagið á ensku:
Big Green Lies are Imploding

Loftslagsóvísindamenn
Loftslagsóvísindamenn
Óvísindalegir vísindamenn núlla sig út

Gore reiður og graður á hóteli
Gore reiður og graður á hóteli
Hann vildi láta nudda “þarna niðri”

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: