Grænu æringjarnir

Í gær var spilað um súberdolluna í Bandaríkjunum.  Ein af hefðunum í kring um þann atburð er útgáfa ‘flottustu sjónvarpsauglýsinganna’ og fólk bíður í eftirvæntingu eftir því hvað verður í boði í hvert sinn.

Ein umtalaðasta auglýsingin í gær var Audi auglýsing sem gerir ‘góðlátlegt grín’ að grænu lögregusveitunum í Bandaríkjunum.  En það sem sýnt er í auglýsingunni er bara það sem auðveldlega gæti orðið.   

Lumman í auglýsingunni er auðvitað sú að Audi maðurinn fær þumal upp hjá þessum harðstjórnarsveitum og þú sem áhorfandi átt að samsama þér með þeim manni, en hinir ‘glæpamennirnir’ eru að gera hluti sem flestir munu frekar sjá sjálfa sig í…

Kíkið á fjörið og setjið ykkur í spor fórnarlambanna.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments