Google vs China

Margir halda að Google sé á móti ritskoðun en Webster Tarpley fullyrðir að það sé algjört bull. Google og fleiri internetfyrirtæki vinni náið með bandarísku leyniþjónustunni(CIA) í pólitískum tilgangi.   Gott dæmi er notkun CIA á Twitter síðasta sumar í tilraun til að grafa undan stjórn Írans.  Þó dæmið hafi ekki gengið alveg upp þar þá gengu hlutirnir upp í Georgíu á sínum tíma og brjálæðingurinn Sakaashvili vann kosningar með hjálp CIA.  Obama komst líka til valda með svipuðum aðferðum og vinur okkar Yushenko í Úkraínu flaut yfir andstæðinga sína á appelsínugulu skíi.  Það sé því ekkert skrítið að kínversk stjórnvöld telji sig hafa gilda ástæðu til að hindra Vestrænar leyniþjónustur í að dreifa áróðri með Internetinu.

Í grein sem birtist 5. janúar síðastliðinn í netútgáfu Los Angeles Times er sagt frá tímabundnu afnámi ritskoðunar kínverskra stjórnvalda á netinu.  Skyndilega höfðu notendur aðgang að síðum sem höfðu verið bannaðar í marga mánuði m.a. YouTube, Facebook og Twitter.  En þetta stóð ekki lengi yfir og nokkrum klukkutímum seinna komu villuboð yfir skjáin hjá þeim sem reyndu að skoða þessar síður.  LAT ýjar að því að um hafi verið að ræða viðhald á tölvukerfinu sem keyrir ritskoðunarsíu kínverskra stjórnvalda en Tarpley veltir öðrum möguleika fyrir sér.  Að bandaríska leyniþjónustan hafi staðið á bak við þennan atburð eða a.m.k. að kínversk stjórnvöld hafi haldið það.  Því tíu dögum seinna ásökuðu Google, Adobe og Northrop Grumman Kínverja um innbrot í tölvukerfi sín.  Kannski voru Kínverjarnir að hefna sín eða að leita að gögnum?

Tarpley heldur því fram að samskipti Bandaríkjanna og Kína séu komin í öllu verri farveg undir stjórn Obama en Bush yngri.  T.d. sé nýtt árásarstríð á Pakistan partur af nýrri heimsmynd þar sem lönd í kringum Rússland og Kína verða bútuð niður eða gerð fjandsamleg þessum tveimur löndum.  Allt til að tryggja yfirburði Vestrænna fyrirtækja og stjórnvalda.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments