
Nýjasta nýtt í innrætingu ungdómsins, nýr tölvuleikur, Call of Duty – Black Ops, sýnir hvernig pyndingar eru gagnlegar til að knýja fram upplýsingar.
Að vísu eru pyndingar ekki gagnlegar til neins annars en að knýja fram falskar játningar, það eru meira að segja til rannsóknir á vegum bandaríska hersins sem komast að þeirri niðurstöðu. Enda hver trúði eiginlega á játningar “svikaranna” í kommúnistalöndunum, sem auðmjúkir játuðu allt fyrir sýndardómsstólum til þess eins að fá að deyja fljótt og losna undan pyndingunum.
En ný kynslóð er að vaxa úr grasi, þeirra heimur er framleiddur í hollýwood og hjá áróðursmeisturunum. Þar virka pyndingar, því heimsveldið er spillt og vill herdeildir siðlausra og óupplýstra fanta, sem káfa í öryggishliðum, pynda andófsmenn og deyja í eiturgufum frá rýrðu úrani á vígvöllum hinnar nýju heimsmyndar.
Dæmin eru fjölmörg, Bauer drullusokkurinn í sápuóperunni 24 pyndar á fullu, Búsh viðurkennir í ævisögu að hann hafi fyrirskipað pyndingar og er stolltur af því og svo framvegis.
Hér fyrir neðan sést pyndingaatriðið úr Call of Duty, Alex Jóns skýrir málið.

Comments
Powered by Facebook Comments