Beina samúð í viðeigandi farveg
Obama Bandaríkjaforseti hefur sett þá félaga George W. Bush og Bill Clinton yfir gríðarlega fjáröflunarherferð til styrktar fólkinu á Haiti.
Forsetarnir fyrrverandi settust niður í þættinum “Face the Nation” á CBS stöðinni og skýrðu nokkur atriði.
Þeir líta hvor á annan sem vini. Móðir Bush finnst Clinton vera sem fimmti Bush sonurinn.
Spurður hvort þetta góðgerðastarf þeirra væri ávöxtur þeirrar vináttu sagði Bush svo ekki vera, heldur séu þeir bara tvær gæjar sem vilja stýra samúð almennings í réttan farveg. Þennan frasa endurtekur hann síðar í viðtalinu, svo ekkert fari nú milli mála.
Hvaða lærdóm hefur Bush svo dregið af hörmungunum í New Orleans? Jú, fólk mun vilja hjálpa. Það verður bara að passa vel að þerri hjálpsemi sé beint í réttan farveg.
Það tókst auðvitað með eindæmum vel í New Orleans, þar sem óratíma tók að koma hjálparliði og vistum á staðinn, þó malbikaður vegur liggi þar alla leið, þar voru vegatálmar og fleira notað til að hindra óskipulagða aðstoð frá gervi hjálparstofnunum eða ættingjum.
En nú getur fólk sem sé óhrætt beint góðvild sinni í formi fégjafa til clintonbushhaitifund, forsetarnir fyrrverandi munu passa að féið komist ekki í hendur gráðugra gervihjálparstofnanna eða stríðsæsingamanna sem kynnu að nota hörmungar til að setja her á land og taka yfir stjórnkerfi eyjanna.
Þá er líka engin hætta á að fólk beini samúð sinni í að skoða sögu eyjanna og reyni að laga rót vandamálanna, heldur hrúga bara peningum upp í haug sem þeir félagar geta svo notað til að byggja nýtt og betra Haiti, samkvæmt þeirra eigin hugmyndum.

Comments
Powered by Facebook Comments