Glæpsamlega flottir Levi Strauss bolir

Breskum ferðamanni var sagt af öryggisvörðum á Gatwick flugvelli að hylja stuttermabol sinn þar sem hann væri ‘ógnandi’ og ‘hvetji til hryðjuverka’.  Bolurinn var venjulegur Levi Strauss bolur með hauskúpu og tveimur marghleypum ásamt frægu slagorði – Frelsi eða dauði. 

Fyrst sögðu þeir mér að taka af mér skóna og svo grömsuðu þeir í veskinu mínu, sem er ‘skiljanlegt’, sagði 38 ára tveggja barna faðirinn sem var á leið með fjölskyldunni til Austurríkis.  Svo sögðu þeir mér að hylja bolinn svo flugfélögin yrðu ekki ‘hrædd’ vegna þess hve ‘ógnandi’ hann er.

Þetta er fjarri því einsdæmi um pólitíska úttekt á klæðnaburði ferðamanna.  Brak Jayakody frá London var stöðvaður þegar hann ætlaði að fara í flug í Transformers bol sem var ‘ógnandi’.  Ástrali var stöðvaður á flugvelli í London og gert að fara úr bol sem sagði Georg Bush mesta hryðjuverkamann í heimi.

Andi flugvalla smitar út í samfélagið og því var 80 ára uppgjafarhermaður handtekinn í verslunarmiðstöð fyrir að klæðast bol gegn stríðsrekstri.  Bolurinn skartaði blóðslettugrafík ásamt áletruninni “4.000 hermenn og 1 milljón Íraka látnir.  Það er nóg.” 

Enn einn hryðjutitturinn var stöðvaður í verslunarmiðstöð í bol sem á stóð niðurrifsfrasinn Give Peace a Chance.

Dæmin eru mörg, skoðið þessa slóð til að sjá upprunalegu fréttirnar: “Freedom Or Death” T-shirt Described As “An Incitement To Terrorism” By Airport Security

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,