
Eitt algengasta plastefni sem framleitt er í heiminum(BPA) er talið valda ófrjósemi meðal karlmanna. Samkvæmt rannsóknum eru menn með hátt hlutfall BPA í líkamanum yfirleitt með lélegar og fáar sæðisfrumur.
BPA er m.a. notað í barnapela, CD hulstur, plasthnífapör og niðursuðudósir. Þetta skemmtilega efni hefur sömu áhrif á líkamann og kvennhormónið estrógen og veldur truflun á hormónastarfsemi.
Einhverjar rannsóknarniðurstöður hafa gefið til kynna að efnið væri öruggt meðan aðrar tengja það við brjóstakrabbamein, offitu, sykursýki og að sjálfsögðu ófrjósemi.
Sérfræðingar áætla að yfir 90% allra manna séu með BPA í sér. Sem er kannski ekki skrítið því árlega eru framleidd yfir 2.2 milljón tonn.
Fyrr á þessu ári bannaði Danmörk notkun efnisins í pelum og matarumbúðum fyrir börn undir 3ja ára.
Í rannsókn sem prófessor John Meeker hjá Háskólanum í Michigan framkvæmdi á 190 mönnum. Kom í ljós að þeir sem höfðu mest af BPA í sér voru að jafnaði með 23% lélegra sæði en hinir.
Niðurstöðurnar voru birtar í vísindariti en í viðtali sagði prófesorinn að endurtaka þyrfti rannsóknina á stærra úrtaki.
Comments
Powered by Facebook Comments