
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var á 60.000 ófrískum konum í Danmörku benda til þess að þær sem drukku drykki með gerfisætuefnum voru líklegri til að eignast fyrirbura. Samkvæmt Þórhalli Halldórssyni sem framkvæmdi rannsóknina voru konur sem drukku einn skammt á dag 38% líklegri til að eignast fyrirbura og þær sem drukku fjóra skammta 78% líklegri. þó rannsóknin nái ekki til hvers vegna þetta gerist þá getur höfundur rannsóknarinnar sér til að gerfisætuefnin breyti ástandi legsins.
Comments
Powered by Facebook Comments