Geldum gagnlausa segir Ricky Gervais

Hann er ekki þekktur fyrir að tipla varlega framhjá viðkvæmum málum.

En Ricky Gervais, þó honum fyrirgefist margt, kann þó að hafa farið yfir strikið í þetta sinn með yfirlætislegri athugasemd sinni um offjölgun.

Grínarinn sem sjálfur á ekki börn sagði að ‘óábyrga’ foreldra ætti að gera ófrjóa.

Hinn 48 ára Gervais sagði ‘of mörg óvelkomin börn, of margt fólk sem er fátækt og á erfitt’.

Hann bætti við: ‘Ef allir byggju við góð lífsgæði þá myndi enginn kvarta.  Það er bara of mikið af gagnlausu fólki.  Of margt fólk sem ætti ekki að eiga börn.’

Aðspurður af Sunday Times hvort takmarka eigi barnseignir sagði hann: ‘Já, byggt á… heimskum fitufésum.  Ef kona gengur í leggins, étur kartöfluflögur með rettu í munnvikinu, geldið hana þá.’

Týpiskur 'Chav' - Wikipedia

Því hefur verið haldið fram að Gervais, sem ólst upp á óðalsbúgarði í Reading, hafi í raun verið að tala um að gera hina óæðri ófrjóa, skrílinn, ‘chavana’.

En hann staðhæfir að ummæli hans hafi ekki einvörðungu átt við stétt.

‘Ég talaði um óábyrga foreldra.  Chavarnir gætu þó talist óábyrgir.’

Hann sagði að hann og kærasta sína síðustu 27 árin hafi rætt um að stofna fjölskyldu en ákveðið að gera það ekki.

‘Of mikið vesen’ sagði hann.

Frétt Daily Mail:
Sterilise irresponsible people before they have children, says Ricky Gervais

Mynd cc: Admiralty.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments