
Þessi kona segir farir sínar ekki sléttar. Hún vill meina að stjórnvöld í heimalandi sínu, Austurríki, ofsæki sig vegna skoðananna sinna og þeirra upplýsinga sem hún kemur á framfæri. En hún á að mæta fyrir rétt 12. ágúst næstkomandi sökuð um geðveiki og fundin sek missir hún borgararétt sinn. Verður lokuð inn á stofnun og á ekki möguleika að verja hendur sínar.
Alex Jónes hefur vitnað í skrif þessarar konu og ýmsar upplýsingar sem hún hefur fundið hafa ratað í fjölmiðla. Þetta mislíkar yfirvöldum sem telja hana sjá samsæri í hverju horni og vera hættulega sjálfri sér og öðrum.
Á á heimasíðu konunnar kemur fram að Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður, hafi boðist til að hjálpa henni. En Jane Burgermeister, en það heitir konan, vonast eftir pólitísku hæli á Íslandi ef þessum ofsóknum linnir ekki.
Comments
Powered by Facebook Comments