Gagnrýni á NATÓ hættuleg í Líbíu

Aðgerðasinninn og fréttahaukurinn Franklin Lamb var skotinn af leyniskyttu fyrir utan hótel sitt í Líbíu á sunnudag (21.8.2011).

Franklin er forystumaður Áhugahóps Bandaríkjamanna um frið í Miðausturlöndum.  Lamb hefur fjallað um málefni Líbíu á vefsíðu sinni og fleirum góðum, svo sem Veterans Today og Global Research.

Hann var skotinn í fótinn fyrir utan hótelið sitt þegar hann var að koma úr fréttaöflun á hjóli.  Honum líður eftir atvikum vel og biður fólk að hafa ekki áhyggjur af sér.

Ekki er enn fullljóst hvort Lamb var skotinn vegna afar gagnrýnnar umfjöllunar sinnar um þátt NATÓ sem árásaraðila í Líbíu, en fordæmi eru fyrir því að fréttastöðvar sem ekki syngja samkvæmt nótnablöðum NATÓ verði fyrir óhöppum, sú saga er til dæmis tíunduð hér (tengill)

Nýleg grein Franklin Lamb:

Will Obama Pull the Plug on NATO’S ’Imminent Liberation of Tripoli’?

http://www.palestinecivilrightscampaign.org/

http://www.infowars.com/prominent-american-activist-shot-by-sniper-fire-in-tripoli-internet-cut/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,