Eins og spáð var fyrir um í fornum ritum hefur gagnauga.is nú loksins risið aftur upp frá dauðum. Við erum þó ekki hingað komin til að dæma lifendur og dauða heldur munum við láta okkur duga að deila fróðlegum og áhugaverðum upplýsingum til fólks. Veraldarvefurinn er hafsjór af óteljandi mögnuðum myndbrotum, skjölum og allskonar allskonaði. Samt lendir maður stundum í því að detta ekkert í hug til að skoða þegar vanabundni rúnturinn er búinn. Hér mun einvalalið fólks sjá um að velja út fréttir og myndbrot fyrir öll þau skipti sem þig vantar eitthvað sniðugt til að skoða.
Gagnauga snýr aftur
– 12/08/2010Posted in: Fjölmiðlar, Ísland, Klórað í yfirborðið

Comments
Powered by Facebook Comments