
Mynd: Ava, 5 ára, hermir eftir nýja geishuvaralitnum hennar Lafði Gaga CC visual dichotomy
Stórstraumspenninn Bel Mooney viðurkennir að Gaga sé að eitra hugi barnanna og segir hana frábrugðna Cliff Richards og öðrum fyrri tíma poppgoðum, sem notuðu mjaðmahnykki og dónadans til að ná athygli.
Bel skrifar: “Því það sem einu sinni var uppreisnarkennt er nú stórstraumsiðnaður og óumflýjanlegt; það sem eitt sinn var gefið í skyn er nú grafískt afdráttarlaust – og það versta er að allt miðast það að markhópi sem verður yngri og yngri.”
Lady Gaga IS poisoning children’s minds
En hvers vegna að lesa útvatnað bla bla frá stórstraumnum þegar kemur að þessu kukli tónlistariðnaðarins og andsetinna púka þeirra. Ég mæli með greiningardeild árvökula borgarans (VigilantCitizen.com), þar sem lesa má um bakgrunn þeirra tákna sem notuð eru til að binda börnin í álög og móta persónuleika þeirra með flóknu myndmáli sem flestir skilja ekki meðvitað, en virkar vel á ‘hinn’ heilann okkar, þennan ómeðvitaða, djúpið, innsæið, þann þögula sem vinnur einmitt í myndmáli og tilfinningum.
Sá árvökuli er bæði með fræðilegar bakgrunnsgreinar um kenningar og aðferðir til að stjórna hópum með fjölmiðlum, ásamt lista af bókum sem ýmist eru aðgengilegar ókeypis í rafrænu formi, eða fáanlegar á netinu, en einnig eru beinharðar greiningar á einstaka poppmyndböndum, en eitt slíkt hefur verið þýtt af Gullvagninum: Síðbúin jólagjöf frá hófasveininum
Comments
Powered by Facebook Comments