Ein stór, hamingjusöm fjölskylda. Óbama og Sarkózy eru kózy, Múbarakki snýr rassi í myndavélina og heldst í hendur við Gaddafi. Tekið á G8, 2009
Frakkar voru ekki yfirlýsingaglaðir varðandi Túnis og Egyptaland, en reyndu að bæta það upp með stóryrðum um Líbíu, fordæmdu stjórn Gaddafis, viðrukenndu uppreisnarmenn sem lögmæt stjórnvöld og þrýstu á flugbann.
Hvernig brugðust Gaddafimenn við? Við viljum peningana endurgreidda!
Saif sonur Gaddafi segir: “Sarkózy verður að endurgreiða okkur peningana sem hann tók við frá Líbíu til að fjármagna kosningabaráttu sína. Við fjármögnuðum hana og við eigum öll gögn og erum tilbúnir að upplýsa það allt. Hann á fyrst að endurgreiða líbísku þjóðinni. Hann fékk féð til að hann gæti hjálpað okkur. En hann hefur valdið okkur vonbrigðum, við viljum peningana til baka. Við eigum allar bankaupplýsingar og skjölun um millifærslur og við munum gera það opinbert fljótlega.”
Þó Saif sé kannski ekki trúverðugasti náunginn um þessar mundir, þá hafa svipaðar ásakanir fyrr verið bornar á Sarkozy af öðrum aðilum. Full peningaumslög frá auðugum frönskum frúm og bónusgreiðslur af vopnasölu til Pakistan hafa verið nefndar.
Ein stór, hamingjusöm fjölskylda. Óbama og Sarkózy eru kózy,
Múbarakki snýr rassi í myndavélina og heldst í hendur við Gaddafi.
Tekið á G8, 2009
Comments
Powered by Facebook Comments