Gaddafi er góði gæinn

Íslendingar vita lítið eða ekkert um Líbíu.  En samkvæmt UN þá er Líbía í 53 sæti yfir þróuðustu þjóðir heims.  Á undan löndum eins og Rússlandi(65), Úkraínu(69) og Brazilíu(73).  Þrátt fyrir að hafa níðst á pólitískum andstæðingum þá hefur Gaddafi verið duglegur að byggja upp innviði Líbíu og deila olíuauðnum með íbúum landsins.  Svona a.m.k. á Afríkumælikvarða.

Webster Tarpley segir í grein sinni um ástandið að árás á Líbíu sé í raun brot á stofnsáttmála Sameinuðuþjóðanna.  Samkvæmt grein 7 eru hernaðarleg afskipti af löndum aðeins leyfileg ef þau ógna friði og stöðugleika í heiminum.  Þar sem Líbía gerir hvorugt, eru allar árásar ólöglegar.

Afsökun nýlenduveldanna í dag eru árásir á saklausa borgara sem þurfi að stöðva.  En átök uppreisnarmanna við stjörnvöld eru innanríkismál Líbíu og þar sem ekkert ríki getur verið árásaraðili á sínu eigin landi þá er hið svokallaða flugbann ólöglegt með öllu.  Rúsínan í pylsuenda Obama og félaga er síðan vopnasölubann á Líbíu sem Bandaríkin er strax búinn að brjóta með því senda vopn til uppreisnarmanna.

http://tarpley.net/2011/03/19/obamas-bay-of-pigs-in-libya/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments