Oddvitinn kosinn af andstæðingum

Í síðustu bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ var oddvita Samfylkingarinnar velt úr stóli og nýr maður tók óvænt forystuna.

Guðbrandur Einarsson hafði starfað fyrir Samfylkinguna í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil.  Hann var iðinn við að setja sig inn í mál og taka afstöðu.  Sú afstaða var ekki alltaf þægileg fyrir meirihlutann, né heldur móðins á þeim trylltu tímum þegar vitfirringin heltók nánast allt samfélagið og þeir sem reyndu að vera jarðtengdir voru bara vitlausir og gamaldags, skildu ekki nýja hagkerfið og íslenska efnahagsundrið.

Hann lét ekki nægja að þvælast fyrir andstæðingum sínum í Reykjanesbæ, heldur hikaði ekki við að senda samflokksmönnum sínum í Reykjavík tóninn, ef þeim skrikaði fótur á hinni vel smurðu súlu hagsmunapots og spillingar.  Í nóvember 2007 var til dæmis þetta haft eftir honum, varðandi einhverja skuggalega baktjaldadíla milli hins handónýta OR og Gey-Green:

„Ég mun ekki una því að Hitaveita Suðurnesja verði enn á ný notuð sem skiptimynt í einhverjum samningum.  Menn verða að axla ábyrgð í málinu og komast ekki hjá málshöfðun Geysis með því að afhenda þeim hlut sinn í Hitaveitunni. Ég lít á þessa tillögu sem tilraun til að afstýra slíkri málshöfðun. Ég sem Suðurnesjamaður sætti mig ekki við að borgarstjórn Reykjavíkur vinni á þennan hátt, hvort sem um er að ræða samflokksmenn mína eða einhverja aðra.“
(Fréttablaðið, 23.11.2007)

Í staðarblaðinu Víkurfréttum frá því í gær, 26.8.2010, er langt og skemmtilegt viðtal við Guðbrand, en inn á milli annars efnis má finna eftirfarandi kafla:

“Ég fékk símhringingar á prófkjörsdaginn þess efnis að í gangi væru atburðir sem myndu gera það að verkum að ég yrði felldur.  Og ég fékk ekki þessar símhringingar frá samflokksmönnum mínum heldur frá pólitískum andstæðingum sem höfðu fengið þá vitneskju að smalað hefði verið inn í Sjálfstæðisflokkinn.  Einstaklingar í röðum sjálfstæðismanna hafa staðfest það við mig að á bilinu þrjú til fjögur hundruð atkvæði hafi komið úr Sjálfstæðisflokknum inn í prófkjörið hjá Samfylkingunni til að styðja mótframbjóðanda minn.  Ég fékk símhringingar frá mörgum andstæðingum mínum sem hreinlega báðu mig afsökunar á því að þetta hefði gerst.”

Það er því nokkuð ljóst að þeir aðilar innan bæjarsamfélagsins sem vilja álverið byggt, arðbær bæjarfyrirtæki einkavinavædd og áframhaldandi 2007 sukk meðan einhversstaðar er hægt að slá meiri lán, þeir aðilar hafa ekki viljað hætta á að Riddarinn þeirra, Árni Sigfússon, myndi haldast í hnakki í kosningunum.  Þeir hafa viljað tryggja betri meðspilara í forystusæti Samfylkingarinnar.  Hvort heldur sem þeir hafa gert hann út frá upphafi, eða látið nægja að skoða feril hans og draga sínar ályktanir út frá því, en maðurinn hefur lengi höndlað með sjóði annarra, bæði í lífeyrissjóði og svo stökk hann til Kaupþings í Lúxemborg þegar gullkálfurinn var orðin glóandi og dansinn æstist.

Viðtalið við Guðbrand má lesa í heild á vefsíðu Víkurfrétta

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments