Frímúrarar opna dyrnar

I gær fékk ég óvænta símhringingu. Dularfull rödd hvíslaði “Frímúrarahúsið er opið almenningi, kemur þú?” Þessu gullna tækifæri gat ég ekki sleppt. Ég læddist í útigallann og setti upp hárkolluna svo mér yrði örugglega hleypt inn. Múgur og margmenni var í húsinu. Allir glaðir og brosandi yfir því að geta borið dýrðina augum. Uppi á efstu hæð er svokallaður hátíðarsalur. Salurinn er mjór og nokkuð langur með stólum meðfram veggjunum og pípuorgeli í einu horninu. Það sem vakti samt mesta athygli af minni hálfu voru tvær nákvæmar eftirlíkingar af Sphinxinum. Sem voru staðsettar á gólfinu fyrir innan miðjuna á salnum.

Mikið er þetta nú skrítið hugsaði ég. Stóð ekki í bæklingnum sem ég fékk að reglan á Íslandi byggði á kristnum grundvelli. Jú, það er rétt. Allt mjög kristið og kristilegt. Samt eru heiðin tákn m.a. nasista krossinn upp um alla veggi og á sverðum sem voru þarna til sýnis. Það fór nefnilega ekkert á milli mála að reglubræður eru þungvopnaðir. Tilbúnir að slá hvern þann niður með sverði sem gengur gegn reglunni eða brýtur eiðstafi hennar. Jesú hvað!

Í tilefni þessarar heimsóknar er tilvalið að hlusta á nýjasta myndbandið hans Kenna West.  Fíneríð er nefnilega stútfullt af frímúraramyndmáli og djöfladýrkun.

http://vigilantcitizen.com/?p=4576

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments