Föstudagsaðgerðir gegn IMF

Við mótmælendur erum sammála um það að nú ríður á að losna við IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) sem er hinn eiginlegi stjórnandi hér á landi. Þeir eru með puttana í öllu sem lýtur að stjórnsýslunni og halda efnahagskerfi landsins í heiljargreipum.

Þess vegna ætlum við að setja alla okkar krafta í það að hrekja IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn) burt héðan. Hann ógnar ekki aðeins almennum lífskjörum þjóðarinnar heldur eignarhaldi hennar á landinu sjálfu og um leið áframhaldandi búsetu okkar og afkomendanna hér á Íslandi.

* Það er sendifulltrúi AGS sem krefst niðurskurðar á velferðarkefinu!
* Það er hann sem krefst þess að fjármagnseigendur og lánastofnanir skuli njóta skilyrðislauss forgangs á kostnað almennra borgara.
* Það er hann sem krefst þess að nauðungaruppboðum á gjaldþrota heimilum verði ekki frestað lengur en til loka október í haust.
* Það er hann sem fer fram á það að náttúruauðlindum okkar skuli komið í peninga og svo mætti áfram telja þau gerræðisráð sem Franek Rozwadowski beitir til að grafa undan lífsgæðum þjóðarinnar og stýra efnahag landsins til endanlegar glötunar í leiðinni.

Það ætti að liggja í augum uppi hve brýnt það er að losna við þennan aðila! Við hvetjum þig til að taka þátt í því bráðnauðsynlega verkefni með okkur og mæta í hádeginu með hávaðatól í portið á bak við Stjórnarráðið, eða við framhlið Hverfisgötu 4a, þar sem skrifstofa sendifulltrúa IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðins) er til húsa.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: ,