Forysta flúorskemmdra fávita

Fólk treystir þingi, stjórn og allskyns eftirlitsstofnunum til að taka réttar ákvarðanir og gæta hagsmuna almennings gegn auðhringjum, einokunaröflum og ótíndum glæpamönnum.  Sama fólki finnst Kryppa.COM of langt hinum megin við strikið og að fréttir okkar jaðri við skemmtiefni vegna þess hve fáránleg sú mynd er af heiminum sem við drögum upp í samanburði við þá mynd sem stórstraumurinn dregur upp, þar sem allt er slétt og fellt, fyrir utan nokkrar tilviljanir, óheppni og vanhæfni sem tafarlaust eru [sagðar] leiðréttar af kerfinu.

En hér er gott dæmi um það úrvalslið sem starfar fyrir okkur á þingi.  Sama liðið sem ákveður að setja kvóta á útblástur koltvísýrings, byggðan á falsvísindum og lygum.  Þessi þingmaður, Hank Johnson, er með flotaforingja í klónum og er að sauma að honum vegna áætlana um að reisa herstöð á Guam, þar sem 8.000 hermenn, fjölskyldur og annað fylgdarlið, alls 25.000 manns myndu bætast við fólksfjölda eyjanna.  Þingmaðurinn höfuðþungi reifar mál sitt ferlega, fer yfir lengd og breidd eyjarinnar, á í talsverðum vandræðum með að finna orðin til að lýsa þessum flóknu hugtökum, biður flotaforingjann um hjálp við að reikna flatarmálið og að lokum….

… LÝSIR ÁHYGGJUM SÍNUM Á ÞVÍ AÐ EYJUNNI MUNI HVOLFA VEGNA OFFJÖLGUNAR EYJARSKEGGJA!

Ég er ekki að grínast, skoðið bara myndbandið.  Hvers vegna á fólk svona erfitt með að hugsa?  Hvers vegna þekkir það ekki einföldustu staðreyndir, til dæmis þær að eyjum hvolfi ekki?  Er einhver furða þó allskyns rugl lögum og reglugerðum sé dembt á okkur?

Gott fólk, hugsið um Johnson þegar þið kaupið tannkrem.  Flúorlaust tannkrem fæst í heilsubúðum.  Hugsið um hann þegar þið veljið sætuefni, borðið bara minna en notið alvöru sykur.  Ekki dæla kvikasilfri inn í líkama með bólusetningum.  Ekki innbyrða kvikasilfur í unnum matvælum sem innihalda HFCS.  Ekki snæða 3ja kryddið.  Þetta er allt viðurkennt í lagi og “öruggt” af til þess bærum eftirlitsstofnunum, en reynið að muna eftir fjármálaeftirlitinu og álagsprófunum þeirra á íslensku bönkunum.  Staðreyndin er sú að það er ansi mikið um tilviljanir, óheppni og vanhæfni í gangi!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments