
Sovétmúrinn féll, en þeir sem una sér best í hörðum faðmi ríkisfulltrúa og forvarna þurfa ekki að örvænta, því eins og Jesú dó fyrir fjöldann, þá dó Sovétið svo allur heimurinn gæti breyst í draumaland öreiganna og alsælu alræðisins.
Ágæti lesandi, íhugaðu nú eitt fyrir mig. Heldur þú að þær geggjuðu fréttir sem Kryppan flytur reglulega, eða aðrir fjölmiðlar einstaka sinnum í hálfgerðu gríni, heldur þú að þessar fréttir sýni hversu öfgafullir Bandaríkjamenn, eða Bretar, eða Ástralir séu? Eða áttar þú þig á því hvernig þeir eru bara hænuskrefi á undan okkur í gæsagangnum að Orwellsku Stórabróðursamfélagi þar sem allir eru snauðir, ófrjálsir og undir stöðugu eftirliti?
Tvö skref áfram, eitt til baka. Tvö áfram, og svo eitt til baka. Það er dans Fabían sósíalistanna, hægt og hljótt, tvö pínulítil hænuskref áfram og svo eitt til baka. Passa að vekja ekki skrímslið (almenning), heldur færa allt samfélagið hægt og hljótt inn í múra eftirlits og reglugerða.
Hér er ein góð frá Bandaríkjunum:
Fulltrúar stjórnvalda geta læðst inn á lóð þína um miðja nótt og komið GPS eftirlitstæki fyrir neðan á bílnum þínum, því að þú átt engan rétt á einkalífi úti á lóðinni þinni, og þú getur ekki ætlast til þess að stjórnvöld séu ekki að fylgjast með ferðum þínum. Bandaríkjamenn eru auðvitað komnir með “forvirku” rannsóknarheimildirnar, vagga hryðjuverkalaganna.
Þegar GPS tækinu hefur verið komið fyrir, þá er stjórnvöldum frjálst að skrásetja allar ferðir viðfangsins án dómsúrskurðar. Það hefur væntanlega fordæmisgildi fyrir alla þá síma sem hafa GPS innbyggt. Forvirkar greiningardeildir geta þá feimnislaust unnið úr öllum þeim upplýsingum sem þeir símar klaga til yfirvalda, þinn eigin rafræni Stasi fulltrúi. Ekki má gleyma því að yfirvöld geta kveikt á hljóðnema farsíma með fjarstýringu, ef þau eru forvitin um hvað þú ert að gera. Að auki eru auðvitað öll símtöl hljóðrituð og tölvur raddgreina svo upptökuna og gera eftirrit, sem svo eru slædd eftir lykilorðum sem gætu stutt við grunsemdir yfirvalda um að þú (og við öll) séum jú HRYÐJUVERKAMENN.
CC mynd Dirk Adler

Comments
Powered by Facebook Comments