
Villhjálmur prins og einhver eðla, mynd CC VinnieLDA
Charlien Veitch, foringi Ástarlöggunnar, var handtekinn af breskri lögreglu í forvirku áhlaupi á þá sem kynnu að skyggja á brúðkaupsdaginn með mótmælum.
Ákæra Charlie og annarra sem forvirkt voru sviptir frelsi vegna þess að þeir voru taldir líklegir til að nota daginn til að hrista einhverjar sálir úr þeim transi dýrkunar og heilaþvottar sem heldur þeim í ánauð elítu og kóngafólks var “samsæri um að vera plága á almannafæri” á brúðkaupsdegi Vilhjálms bretaprins og Kötu englakropps, sem er í dag, 29. apríl 2011.
Charlie hafði orðið var við að um hann var njósnað og hafði útskýrt vandlega fyrir yfirvöldum að hann væri friðsamur og vildi bara fá að iðka málfrelsi sitt, en það virðist ekki lengur teljast til eðlilegra mannréttinda í Bretaveldi.
Kærasta Charlie segir í tölvuskeyti til jaðarfréttastofa: Ef ske kynni að þið séuð að spá í því hvort Bretland sé enn lýðræðisríki, þá virðist svarið vera nei. Ég veit ekki um nokkuð annað dæmi um svo marga aðgerðasinna handtekna, ekki aðeins vegna grunsemda um hugsunarglæpi, málfrelsisglæpi eða glæpsamlega samkomu, heldur eru þeir nú handteknir fyrir þessa ‘glæpi’ með forvirkum hætti, PRE-Crime!
Charlie Veitch Arrested In Pre-Crime Raid Prior to Royal Wedding
Tengt:

Comments
Powered by Facebook Comments