Forvirkni gægjusýki

Hinir almennu borgarar gera ýmislegt þegar þeir halda sig í einrúmi.  Sumt af því gæti verið glæpsamlegt.  Annað bara glæpsamlega vel vaxið.  Í báðum tilfellum geta færanlegir og dulbúnir nektarskimar glatt augu fulltrúa ríkis eða öryggisfyrirtækja.

Fyrirtækið Bandarísk vísindi og verkfræði framleiðir og selur ZBV vagna, en þeir eru í raun færanlegir nektarskimar dulbúnir sem sendiferðabifreiðar.  Í farþegarýminu njóta fulltrúar þess að gægjast inn fyrir föt fagurra fljóða eða stinnra stráka og styrkurinn á geislanum er slíkur að járnkápa flutningagáma eða strætisvagna er engin fyrirstaða.

Vagnarnir eru óskatæki fyrir forvirkar rannsóknir án heimildar, því hægt er að keya um og skima fólk og fénað af algeru handahófi og án þess að gruna neinn um neitt sérstakt, en þar liggur einmitt styrkur forvirku rannsóknana, að safna upplýsingum fyrirfram um fólk, þannig að nota megi þær síðar til að stýra því inn á réttar brautir, eða koma því úr leik í fangelsi, því að í nýrri heimsmynd eru jú allir sekir um eitthvað.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments