Forsetinn og grasrótarstarfið

Kynningarfundur í grasrótarmiðstöðinni var haldin í kvöld til að kynna hópa sem hafa hafið samstarf í húsinu til að sameina grasrótina og ná fram þjöppuðum hóp sem gætu unnið saman að sínum málum. Farið var yfir húsreglur þar sem þeir sem halda fundi þurfa að ganga frá staðnum eins og þeir komu á hann. Bókanir verða gerðar annaðhvort með því að bóka á netinu í gegnum vefsíðu eða hafa samband við fólk sem er í forsvari fyrir húsið.

 

Forsetinn hélt ræðu í lok fundarins og mælti hann með þessar starfsemi þar sem hann á sínum yngir árum sá að það voru bara stóru flokkarnir sem höfðu eithvað að segja með því að eiga allir sitt flokksblað þar sem lína flokksins kom fram. Litlir minnihlutahópar og flokkar sem unnu gegn elítunni fengu því ekki að komast að í blaðaskrifum flokkana og því náðist betur að halda hlutlausum stíl með því að vera með baráttu á milli hægri og vinstri. Sagði hann einnig að allir gætu haft sína rödd í fjölmiðlum með tilkomu netsins þar sem með litlum tilkostnaði væri hægt að hafa sína vefsíðu sem sýndi annað heldur en flokkarnir væru að sína fram á. Þetta væri mesta breytingin sem hann hafði séð á sínum stjórnmálaferli væri fjölmiðla hliðinn á stjórnmálum væri núna frjáls og óflokksbundin. Hann hvatti fólk til að tjá sína rödd á vefmiðlum þar sem sú rödd er að verða sífellt háværari og mikilvægari með tímanum.

Nafn var síðan ákveðið í lok fundar og það var samþykt með meirihluta viðstaddra að kalla þetta grasrótarmiðstöðina og verður lén á vefsíðu til í framhaldi af því þar sem hægt verður að panta tíma í húsinu fyrir fundi.

Erlend sjónvarpsstöð á staðnum

Grísk sjónvarpsstöð var líka þarna og kvikmyndaði viðtal fyrr um daginn við forsetann þar sem hann var staddur í grasrótarmiðstöðinni. Þessi sjónvarpsstöð er búin að vera á Íslandi að taka upp efni varðandi kreppuna og afleiðingarnar hennar. Starfsmennirnir hafa tekið viðtöl við fólk sem er að lenda í skuldavanda og er að missa húsið sitt og aleiguna. Taka þeir viðtal líka við Geir H Haarde fyrrverandi fjármálaráðherra og ætla þeir að spurja hann af hverju hann hafi ferðast út um allan heim til að sannfæra útlendinga um að íslenska fjármálakerfið væri stöðugt þó það væri farið að sýna undarlega hegðun með gengisfellingu rétt fyrir ársfjórðungs uppgjör. Taka þeir líka viðtal við þingmenn úr hreyfingunni og fleira.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments